
Nýju stúlkurnar á LPGA 2018: Maddie McCrary (19/49)
Það voru 49 stúlkur sem hlutu spilarétt á LPGA mótaröðina 2018 í gegnum lokaúrtökumót LPGA sem fram fór á LPGA International vellinum í Flórída dagana 28. nóvember – 3. desember s.l.
Það voru 29 sem hlutu takmarkaðan spilarétt og 20 efstu stúlkurnar sem hlutu kortið sitt á LPGA þ.e. fullan þátttökurétt í öllum mótum LPGA 2018.
Venja hefir verið undanfarin ár að kynna „nýju“ stúlkurnar á LPGA og líkt og áður verður byrjað að kynna þær sem rétt sluppu inn á mótaröðina og hlutu takmarkaðan spilarétt endað á þeirri sem sigraði í lokaúrtökumótinu, en það var japanska stúlkan Nasa Hataoka.
Nú verða kynntar þær 2 stúlkur, sem deildu 30. sætinu þ.e. Sherman Santiwiwatthanaphong frá Thaílandi og hin bandaríska Maddie McCrary. Þær léku báðar hringina 5 á sléttu pari. Byrjað verður að kynna Maddie.
Maddie McCrary fæddist 15. febrúar 1996 og er því aðeins 21 árs. Hún er frá Wylie í Texas.
Hún er dóttir Angie og John McCrary og á eina systur, Haley.
Í menntaskóla spilaði Maddie blak.
Árin 2014-2017 var Maddie í bandaríska háskólagolfinu og lék með kvennaliði Oklahoma State University, þar sem hún átti frábæran feril.
Sjá má afrek Maddie með OSU með því að SMELLA HÉR:
Meðal hápunkta á ferli Maddie er að hafa sigrað á Texas Women’s Open árið 2015 og síðan Texas Women´s Amateur sl. sumar, 2017.
Maddie hlaut takmarkaðan spilarétt á LPGA þegar í fyrstu tilraun! Skor hennar í lokaúrtökumóti LPGA var eins og segir slétt par, 360 högg (72 70 71 71 76).
- febrúar. 23. 2021 | 22:00 Tiger lenti í bílslysi í Genesis GV80
- febrúar. 2. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jenny Sigurðardóttir – 2. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 18:00 PGA: Reed sigraði á Farmers Insurance Open
- febrúar. 1. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Kristín Þorvarðardóttir – 1. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 08:00 Evróputúrinn: Casey sigraði á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 31. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Justin Timberlake – 31. janúar 2021
- janúar. 30. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (5/2021)
- janúar. 30. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Payne Stewart ——- 30. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Snær Loftsson – 29. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 14:45 Evróputúrinn: Detry leiðir í hálfleik á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 28. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Sigurel Arnfinnsson – 28. janúar 2021
- janúar. 28. 2021 | 12:00 Greg Norman selur „húsið“ sitt í Flórída
- janúar. 27. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Karine Icher —— 26. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 07:30 PGA Championship fer fram í Southern Hills 2022 í stað Trump Bedminster