Nýju stúlkurnar á LPGA 2018: Kendall Dye (27/49)
Það voru 49 stúlkur sem hlutu spilarétt á LPGA mótaröðina 2018 í gegnum lokaúrtökumót LPGA sem fram fór á LPGA International vellinum í Flórída dagana 28. nóvember – 3. desember s.l.
Það voru 29 sem hlutu takmarkaðan spilarétt og 20 efstu stúlkurnar sem hlutu kortið sitt á LPGA þ.e. fullan þátttökurétt í öllum mótum LPGA 2018.
Venja hefir verið undanfarin ár að kynna „nýju“ stúlkurnar á LPGA og líkt og áður verður byrjað að kynna þær sem rétt sluppu inn á mótaröðina og hlutu takmarkaðan spilarétt endað á þeirri sem sigraði í lokaúrtökumótinu, en það var japanska stúlkan Nasa Hataoka.
Nú verða kynntar þær 7 stúlkur, sem deildu 23. sætinu. Leticia Ras-Anderica frá Þýskalandi og Madeleine Sheils, Daniela Iacobelli, Alison Walshe, Nannette Hill og Dori Carter frá Bandaríkjunum hafa þegar verið kynntar og í dag er það sú síðasta af stúlkunum ólánsömu í 23. sætinu, sem verður kynnt en það er Kendall Dye.
Kendall Dye fæddist fæddist 3. mars 1987 í Memphis, Tennessee og er því 30 ára. Kendall byrjaði að spila golf 8 ára. Meðal áhugamála hennar er að horfa á kvikmyndir, fara í verslunarleiðangra, lesa og háskólaíþróttir. Hún segir fjölskyldu sína hafa haft mest áhrif á að hún byrjaði í golfi.
Kendall var í University of Oklahoma og útskrifaðist með gráðu í samskiptafræðum (ens.: Communications) árið 2009. Kendall býr í Edmond, Oklahoma.
Eftir útskrift í Oklahoma spilaði Recorded Kendall m.a. á Cactus Tour, þar sem Tinna „okkar“ Jóhannsdóttir spilaði einnig á eftir útskrift. Kendall sigraði í tveimur mótum á Cactus Tour. Næstu 2 árin spilaði hún á LPGA Futures Tour þ.e. 2010 og 2011 og var besti árangur hennar þar 5. sætið á South Shore Championship í Crown Point, Indíana.
Árið 2012 spilaði Kendall á Evrópumótaröð kvenna. Á undanförnum árum hefir hún hins vegar spilað á Symetra Tour þ.e. 2. deildinni í bandarísku kvennagolfi.
Það munaði aðeins 1 höggi á Dye næði kortinu sínu og fullum spilarétti á LPGA.
Til þess að fræðast nánar um Kendall Dye má m.a. skoða heimasíðu hennar með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
