Nýju stúlkurnar á LPGA 2018: Katelyn Sepmoree (1/49)
Það voru 49 stúlkur sem hlutu spilarétt á LPGA mótaröðina 2018 í gegnum lokaúrtökumót LPGA sem fram fór á LPGA International vellinum í Flórída dagana 28. nóvember – 3. desember s.l.
Það voru 29 sem hlutu takmarkaðan spilarétt og 20 efstu stúlkurnar sem hlutu kortið sitt á LPGA þ.e. fullan þátttökurétt í öllum mótum LPGA 2018.
Venja hefir verið undanfarin ár að kynna „nýju“ stúlkurnar á LPGA og líkt og áður verður byrjað að kynna þær sem rétt sluppu inn á mótaröðina og hlutu takmarkaðan spilarétt endað á þeirri sem sigraði í lokaúrtökumótinu, en það var japanska stúlkan Nasa Hataoka.
Þær sem rétt sluppu inn á LPGA mótaröðina í ár voru 5 stúlkur, sem deildu 45. sætinu þ.e. voru T-45 og var ein þeirra Katelyn Sepmoree og verður byrjað á að kynna hana.
Þær sem voru T-45 léku hringina 5 á lokaúrtökumótinu á samtals 2 yfir pari, 362 höggum; Katelyn Sepmoree (72 73 73 70 74).
Katelyn Sepmoree fæddist í Tyler, Texas, 21. mars 1991 og er því 26 ára. Hún er dóttir Scott Sepmoree og Kathy Joyce … og heitir fullu nafni Katelyn Elisabeth Sepmoree.
Hún byrjaði að spila golf 5 ára.
Sepmoree spilaði í bandaríska háskólagolfinu með University of Texas í Austin og má sjá afrek hennar þar með því að SMELLA HÉR:
Meðal hápunkta Sepmoree sem áhugakylfings er eftirfarandi:
Top-8 U.S. Amateur (2013)
Big 12 Team (2013)
All-Region team (2011)
Frá árinu 2014 hefir Sepmoree spilað á Symetra mótaröðinni, þ.e. 2. deildinni í bandaríska kvennagolfinu.
Nú rétt slapp hún inn á mótaröð hinna bestu og er komin með takmarkaðan spilarétt árið 2018!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
