Nýju stúlkurnar á LPGA 2018: Jennifer Hahn (15/49)
Það voru 49 stúlkur sem hlutu spilarétt á LPGA mótaröðina 2018 í gegnum lokaúrtökumót LPGA sem fram fór á LPGA International vellinum í Flórída dagana 28. nóvember – 3. desember s.l.
Það voru 29 sem hlutu takmarkaðan spilarétt og 20 efstu stúlkurnar sem hlutu kortið sitt á LPGA þ.e. fullan þátttökurétt í öllum mótum LPGA 2018.
Venja hefir verið undanfarin ár að kynna „nýju“ stúlkurnar á LPGA og líkt og áður verður byrjað að kynna þær sem rétt sluppu inn á mótaröðina og hlutu takmarkaðan spilarétt endað á þeirri sem sigraði í lokaúrtökumótinu, en það var japanska stúlkan Nasa Hataoka.
Nú verða kynntar þær 13 stúlkur, sem deildu 32. sætinu og hlutu takmarkaðan spilarétt og í dag verður Jennifer Hahn kynnt, en níu fyrstu af stúlkunum 13, Sophia Popov frá Þýskalandi, Martina Edberg og Camilla Lennarth frá Svíþjóð, Alexandra Newell og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum, Wichanee Meechai og Pannarat Thanapoolboonyaras frá Thaílandi, Dottie Ardina frá Filippseyjum og kanadíska stúlkan Maude Aimee Leblanc hafa þegar verið kynntar.

Jennifer Hahn fæddist 14. júní 1994 og er því 23 ára. Hún er dóttir hjónanna Jason og Julie Hahn og er frá Henderson í Nevada.
Hahn var í Green Valley menntaskólanum og spilaði síðan í bandaríska háskólagolfinu með Vanderbilt háskólanum (2012-2016) – Sjá má afrek hennar í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR:
Hahn er nýlega (2016) útskrifuð úr háskóla með lögfræðigráðu og gráðu í stjórnun (ens.: management).
Eftir útskrift spilaði hún mestmegnis á minni mótaröðum (s.s. Cactus Tour) og fékk 12 sinnum að taka þátt í mótum á Symetra Tour og er nú komin með takmarkaðan spilarétt á LPGA – mótaröð þeirra bestu.
Hahn þykir með fegurri kylfingum og því hafa myndir af henni og skrif um afrek hennar á minni mótaröðunum, þar sem hún vann í nokkur skipti birtst á síðum s.s. Golf Babes – Sjá með því að SMELLA HÉR:
Í nýlegri vefsíðugrein greindi Hahn frá því að hún þakkaði Tiger Woods áhuga sinn á golfi – Sjá greinina með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
