Nýju stúlkurnar á LPGA 2018: Daniela Iacobelli (25/49)
Það voru 49 stúlkur sem hlutu spilarétt á LPGA mótaröðina 2018 í gegnum lokaúrtökumót LPGA sem fram fór á LPGA International vellinum í Flórída dagana 28. nóvember – 3. desember s.l.
Það voru 29 sem hlutu takmarkaðan spilarétt og 20 efstu stúlkurnar sem hlutu kortið sitt á LPGA þ.e. fullan þátttökurétt í öllum mótum LPGA 2018.
Venja hefir verið undanfarin ár að kynna „nýju“ stúlkurnar á LPGA og líkt og áður verður byrjað að kynna þær sem rétt sluppu inn á mótaröðina og hlutu takmarkaðan spilarétt endað á þeirri sem sigraði í lokaúrtökumótinu, en það var japanska stúlkan Nasa Hataoka.
Nú verða kynntar þær 7 stúlkur, sem deildu 23. sætinu. Leticia Ras-Anderica frá Þýskalandi, Alison Walshe, Nannette Hill og Dori Carter frá Bandaríkjunum hafa þegar verið kynntar og í dag er það Daniela Iacobelli.
Daniela Iacobelli fæddist 27. nóvember 1987 og er því 30 ára.
Iacobelli byrjaði að spila golf 3 ára. Hún útskrifaðist frá Florida Institute of Technology, (sam skóla og Stefán Þór Bogason nemur nú við) með gráðu í viðskiptafræði (ens. business administration) árið 2009, eftir að hafa spilað í golfliði skólans í 4 ár. Meðan hún lék í bandaríska háskólagolfinu var Iacobelli 29 sinnum með topp-10 árangra þ.á.m. 8 sigra í einstaklingskeppnum. Hún var valin Sunshine State Conference nýliði ársins árið 2005. Hún varð síðan Individual winner of the 2007 NCAA Division II Women’s Golf Championship og var valin íþróttamaður ársins 2007 í Florida Tech.
Árið 2010 var Iacobelli komin á Symetra Tour. Árið 2012 spilaði hún í 15 mótum, náði 10 sinnum í gegnum niðurskurð og var með verðlaunafé upp á $41,049 (þ.e. varð í 5. sæti á peningalista Symetra). Hún varð 5 sinnum meðal 10 efstu og besti árangurinn var sigur á the Daytona Beach Invitational. Sjá má viðtal við Iacobelli eftir sigurinn í Morning Drive golfþættinum með því að SMELLA HÉR:
Á fyrsta ári sínu, 2013, á LPGA spilaði hún aðeins í 1 móti og 2014 var hún aftur komin á Symetra. Spilaði í 20 mótum og náði 16 sinnum niðurskurði. Iacobelli var með $29,383 í verðlaunafé (þ.e. varð í 21. sæti á peningalistanum), átti tvo topp-10 árangra og besti árangurinn var 2. sætið á the FireKeepers Casino Hotel Championship.
Áhugamál Iacobelli eru tónlist, kvikmyndir, að dansa og syngja karoke. Nú er Iacobelli með takmarkaðan keppnisrétt á LPGA árið 2018 og fær þ.a.l. að keppa í nokkrum mótum – ein af þeim 7 óheppnu, sem voru rétt við það að tryggja sér kortið sitt og fullan spilarétt á LPGA.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
