Nýju stúlkurnar á LPGA 2018: Allison Emrey (4/49)
Það voru 49 stúlkur sem hlutu spilarétt á LPGA mótaröðina 2018 í gegnum lokaúrtökumót LPGA sem fram fór á LPGA International vellinum í Flórída dagana 28. nóvember – 3. desember s.l.
Það voru 29 sem hlutu takmarkaðan spilarétt og 20 efstu stúlkurnar sem hlutu kortið sitt á LPGA þ.e. fullan þátttökurétt í öllum mótum LPGA 2018.
Venja hefir verið undanfarin ár að kynna „nýju“ stúlkurnar á LPGA og líkt og áður verður byrjað að kynna þær sem rétt sluppu inn á mótaröðina og hlutu takmarkaðan spilarétt endað á þeirri sem sigraði í lokaúrtökumótinu, en það var japanska stúlkan Nasa Hataoka.
Þær sem rétt sluppu inn á LPGA mótaröðina í ár voru 5 stúlkur, sem deildu 45. sætinu þ.e. voru T-45 og var ein þeirra Allison Emrey . Katelyn Sepmoree, Lauren Kim og Sakura Yokomine hafa þegar verið kynnar og í dag er það Allison .
Allison Emrey fæddist 31. maí 1993 og er því 24 ára.
Emrey var í Adrey Kell menntaskólanum.
Eftir útskrift þaðan var Allison var í bandaríska háskólagolfinu (2011-2015) og útskrifaðist frá Wake Forest 2015 en hún lék í sama liði og Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir.
Ef facebook síðu Emrey er skoðuð má þar sjá hópmynd af liði Wake Forest og sú sem er lengst til vinstri ætti að vera flestum kunnugleg – Til að sjá SMELLIÐ HER:
Sjá má afrek Emrey í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR:
Frá útskrift hefir Emrey spilað á nokkrum mótum í 2. deildinni í bandaríska kvennagolfinu, Symetra Tour.
En nú er Emrey sem sagt komin með takmarkaðan spilarétt á bestu kvengolfmótaröð heims!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
