Celine Herbin Nýju stúlkurnar á LPGA 2018: Celine Herbin (32/49)
Það voru 49 stúlkur sem hlutu spilarétt á LPGA mótaröðina 2018 í gegnum lokaúrtökumót LPGA sem fram fór á LPGA International vellinum í Flórída dagana 28. nóvember – 3. desember s.l.
Það voru 29 sem hlutu takmarkaðan spilarétt og 20 efstu stúlkurnar sem hlutu kortið sitt á LPGA þ.e. fullan þátttökurétt í öllum mótum LPGA 2018.
Venja hefir verið undanfarin ár að kynna „nýju“ stúlkurnar á LPGA og líkt og áður verður byrjað að kynna þær sem rétt sluppu inn á mótaröðina og hlutu takmarkaðan spilarétt endað á þeirri sem sigraði í lokaúrtökumótinu, en það var japanska stúlkan Nasa Hataoka.
Nú verður tekið til við að kynna þær 20 stúlkur sem hlutu fullan spilarétt og kortið sitt á LPGA. Í fyrradag var byrjað á Maríu Torres, sem varð svo sannarlega að berjast fyrir veru sinni á LPGA og hafði betur í bráðabana gegn tveimur öðrum og var ein í 20. sæti.
Í gær var hafist handa við að kynna þær 4 sem deildu 16. sætinu, en það eru Brianna Do, Celine Herbin, Dani Holmqvist og Jessi Tang. Byrjað var á að kynna Briönnu Do og í dag verður Celine Herbin kynnt.
Celine Herbin er dóttir Michel og Claudine Herbin . Hún fæddist 30. október 1982 í Avranches, Frakklandi, og er því 35 ára.
Herbin byrjaði að spila golf 15 og 1/2 árs sem er fremur seint af atvinnukylfingi að vera í dag.
Herbin segir að þeir sem mest áhrif hafi haft á feril hennar sé þjálfari hennar, en þjálfun hennar var slík að hún komst inn á bestu kvenmótaröð heims í 1. tilraun. Nýliðaár hennar á LPGA var 2015.
Herbin var 1 ár við nám í Bucknell University sem skiptinemi og spilaði það ár með háskólaliðinu í bandaríska háskólagolfinu.
Árið 2004 sigraði hún sem áhugamaður á Georgetown Invitational. Árið 2012 gerðist Herbin atvinnumaður.
Á árunum 2012-2014 var Herbin á Evrópumótaröð kvenna, sem hún spilar reyndar enn á, en hún vann sér fyrst inn takmarkaðan spilarétt á LPGA í Q-school 2014 og lék því í nokkrum LPGA mótum 2015.
Besti árangur Herbin 2015 var þó á heimavelli á LET móti þ.e. á Lacoste Open sem hún sigraði í, en sjá má frétt Golf 1 þess efnis með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
