Nýju stúlkurnar á LPGA 2017: Ssu Chia Cheng (48/54)
Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.
155 þátttakendur voru að þessu sinni.
Næst verða þær kynntar, sem deildu 6. sætinu og hlutu kortið sitt og FULLAN keppnisrétt á LPGA, en það eru Ssu Chia Cheng (73 66 69 72 71) frá Tapei og Beth Allen (71 72 68 68 72) frá Bandarikjunum.
Þær léku báðar á samtals á 9 undir pari 351 höggi.
Ssu Chia Cheng fæddist 28. október 1998 og er því 18 ára. Hún vann sinn fyrsta LET titil aðeins 17 ára, haustið 2016 í heimaríki sínu, en þetta var í fyrsta sinn sem mótið var haldið þ.e. Xiamen Open, en það telst hluti af Evrópumótaröð kvenna.
Nýliðaár Ssu Chia var 2015 og hún varð nr. 14 á peningalistanum á LET.
Ssu Chia hefir spilað í 9 mótum á LPGA og besti árangur hennar þar er T-15 á Fubon LPGA Taiwan Championship 2014.
Hún hefir þegar sigrað á 4 mótum á TLPGA þ.e. LPGA í Taíwan.
Hér má sjá myndskeið með myndum af Ssu Chia, sem er oft kölluð Scarlett og eins fallegri sveiflu hennar SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
