Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2017 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2017: Prima Thammaraks (16/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

Nú hafa allar verið kynntar sem voru í 40.-54. sæti.

Í dag verður tekið til við að kynna þær sem voru jafnar í 35. sæti en það eru: Britney Yada; Jessy Tang; Katelyn Dambaugh; Prima Thammaraks og Min-G Kim.

Þær léku allar á samtals 1 yfir pari, 361 höggi.

Byrjað verður á að kynna Primu Thammaraks.

Hin thaílenska Prima Thammaraks fæddist 12. janúar 1992 og er því 24 ára. Hún byrjaði að spila golf 8 ára.

Prima spilaði í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Iowa State. Hér má sjá öll afrek Primu með Iowa með því að SMELLA HÉR:

Hún tók þátt í fyrsta sinn í lokaúrtökumóti LPGA árið 2015 og varð þá í T-26. Á lokaúrtökumótinu 2016 varð hún T-40 og er því enn með takmarkaðan keppnisrétt á LPGA.

Prima útskrifaðist frá Iowa fyrir 3 árum með gráðu í grafískri hönnun og elskar að spila á klassískan gítar utan golfsins, en auk þess hefir hún áhuga á að horfa á kvikmyndir og að teikna.

Hápunktar á ferli Thammarks eru eftirfarandi:

* Hún varð T26 á lokaúrtökumóti LPGA 2015
* Hún spilaði á  CLPGA og Thai LPGA árið 2015
* Thammaraks var Big 12 Scholar Athlete of the Year, 2013-2014 keppnistímabilið í Iowa