Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2017 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2017: Justine Dreher (15/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

4 stúlkur voru jafnar í 40. sæti og hljóta allar takmarkaðan spilarétt. Þetta voru þær: Justine Dreher, Budsabakorn Sukapan, Cindy LaCrosse og Ji-Young Oh.

Allar léku þær á 2 yfir pari, 362 höggum.

Allar ofangreindar 4 stúlkur hafa verið kynntar nema Justine Dreher sem kynnt verður í kvöld.

Justine Anne-Marguerite Dreher , eins og hún heitir fullu nafni, fæddist 29. júní 1992 og er því 24 ára.  Foreldrar hennar eru Freddy og Patricia Dreher.

Justine sigraði á fyrsta móti sínu árið 2008 (16 ára) en það var Grand Prix de Cap d’Agde, og síðan seinna það ár varð hún meðal topp-15 á Internationaux Juniors Filles og var besti franski kylfingurinn í keppninni.

Hún sigraði á Ladies French International árið 2009. Árið 2010 útskrifaðist Justine frá Lycée Audiberti menntaskólanum í Frakklandi.

Árið 2011 sigraði Justine síðan á  Ladies Italian International in 2011 og varð meðal 10 efstu á Ladies European Championship.

Justine hefir verið hluti af stúlkna- og kvennalandsliðum Frakklands og hefir keppt bæði í European Girls’ Team Championship og European Women’s Team Championships.

Síðan spilaði Justine í bandaríska háskólagolfinu með South Carolina Gamecocks á árunum 2011-2015.

Hún útskrifaðist með íþróttagráðu og gráðu í skemmtanastjórnun (ens.: entertainment management), 2015.

Sjá má afrek Justine í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR: 

Eins er þó vert að geta, en á háskólaárum sínum, nánar tiltekið 2014 vann hún ANNIKA Intercollegiate title.

Justine varð í 10. sæti á lokaúrtökumóti Lalla Aicha Tour School og keppti því 2016 keppnistímabilið á Evrópumótaröð kvenna þ.e. Ladies European Tour (skammst. LET).

Og nú er Justine sem sagt komin með takmarkaðan spilarétt á LPGA.