Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2017 | 21:45

Nýju stúlkurnar á LPGA 2017: Ji-Young Oh (14/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

40 stúlkur voru jafnar í 40. sæti og hljóta allar takmarkaðan spilarétt. Þetta voru þær: Justine Dreher, Budsabakorn Sukapan, Cindy LaCrosse og Ji-Young Oh

Allar léku þær á 2 yfir pari, 362 höggum.

Af ofangreindum 4 stúlkum, sem hlutu takmarkaðan spilarétt á LPGA hafa Budsabakorn Sukapan frá Thaílandi og hin bandaríska Cindy LaCrosse þegar verið kynntar og í kvöld verður Ji-Young Oh kynnt.

Ji-Young Oh

Ji-Young Oh

Ji-Young Oh (kóreanska: 오지영, er fædd 3. júlí 1988 í Seúl, Suður-Kóreu og er því 28 ára.

Oh byrjaði að spila golf 12 ára og var í kvennalandsliði S-Kóreu frá árinu 2005, þá aðeins 16 ára.

Árið 2006 fluttist hún til Bandaríkjanna og innritaðist í Leadbetter Academy. Hún spilaði m.a. á the Future Collegians World Tour,  sem er 2. deild fyrir áhugamenn í Bandaríkjunum og sigraði í öllum 6 mótum, sem hún tók þátt í þar.

Árið 2006, eða fyrir 10 árum tók hún í fyrsta sinn þátt í lokaúrtökumóti LPGA og varð í 9. sæti þá og hlaut fullan spilarétt á LPGA 2007 og kortið sitt. Hún gerðist þá þegar atvinnumaður í golfi.

Árið 2007, á fyrsta ári Oh á LPGa var besti árangurinn 6. sætið á Safeway Classic, þar sem hún var m.a. með glæsiupphafshring upp á 66 högg.

Árin eftir vann hún sigra sína tvo á LPGA þ.e. fyrst árið 2008 þá sigraði hún á State Farm Classic þar sem hún sigraði nýliðann  Yani Tseng í bráðabana.

Árið 2009, vann hún 2. sigur sinn á Sybase Classic.

Nú er Ji-Young Oh hins vegar aðeins með takmarkaðan spilarétt á LPGA.