Nýju stúlkurnar á LPGA 2017: Jeong Eun Lee (50/54)
Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.
155 þátttakendur voru að þessu sinni.
Næst verður sú kynnt, sem varð ein í 5. sætinu og hlaut kortið sitt og FULLAN keppnisrétt á LPGA, en það er Jeong Eun Lee (69 73 70 69 69 ).
Hún lék á samtals á 10 undir pari 350 höggum.
Jeong Eun Lee fæddist 20. október 1988 og er því 28 ára.
Jeong Eun Lee gerðist atvinnumaður og hóf leik á kóreönsku LPGA (skammst. KLPGA) árið 2007, en sló ekki í gegn fyrr en árið 2009. Það ár vann hún 2 sinnum, var 6 sinnum meðal efstu 10 í mótum og vann sér inn yfir 280 milljóna won og varð í 4. sæti á peningalistanum. Stærsta stund hennar kom í árslok 2009 þegar hún sigraði 2. risamótið á KLPGA, the Shinsegae KLPGA Championship. Hún átti í hörkubaráttu í mótinu við golf súperstjörnuna suður-kóreönsku Hee Kyung Seo og hafði betur að lokum. Seo hafði þegar unnið fyrsta risamót ársins á KLPGA þ.e. the Korean Women’s Open. Seo vann hin tvö risamót ársins á KLPGA 2009.
Lee var í sigurliði Kóreu í Kyoraku Cup, árið 2009 . Hún náði einum sigri og einu jafntefli.
Lee átti annað ansi hreint gott ár, 2010. Hún varð í 7. sæti á peningalista KLPGA varð 9 sinnum meðal efstu 10. Hápunktur ársins hjá Lee var sigur í Hyundai mótinu í september.
Lee átti síðan ágætis ár 2011, en ekki eins gott og fyrri 2 árin. Hún vann einu sinni og krækti sér í the Nefs Masterpiece titilinn í ágúst. Hún átti aðra tvo topp-10 árangra og vann sér inn 200 milljóna won, sem varð til þess að hún varð í 15. sæti á peningalistanum.
Lee gekk verr 2012 á KLPGA. Hún varð 6 sinnum meðal 10 efstu þ.á.m. þrisvar í 4. sæti og tvisvar í fimmta sæti. Hún varð aðeins í 24. sæti á peningalistanum.
Lee hóf 2013 keppnistímabilið með því að spila í 2 álþjóðamótum og sýndi ágætisárangur á þeim; hún náði 13. sætinu í the Swinging Skirts í Taiwan og varð í 6. sæti í Kína á the Hyundai China Ladies Open. Hún lauk fremur stöðugu ári á KLPGA í 12. sæti peningalistans og aftur með vinningsfé upp á 280 milljónir won. Hún var 9 sinnum meðal efstu 10 þ.á.m. í 2. sæti í the Woori Financial og Lotte Mart Women’s Open.
Árið 2014 var ágætt ár hjá Lee, sem ákvað í árslok að reyna fyrir sér á úrtökumótum fyrir LPGA og var komin með takmarkaðan spilarétt á bandaríska LPGA, bestu mótaröð heims, keppnistímabilið 2015.
Nú eftir að hafa náð 5. sætinu á lokaúrtökumótinu er Jeong Eun Lee hins vegar komin með FULLAN keppnisrétt á LPGA fyrir keppnistímabilið 2017.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
