Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 14. 2017 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2017: Jaye Marie Green (54/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

Sú sem sigraði og hlaut fullan keppnisrétt á LPGA var Jaye Marie Green og er hún síðasta „nýja stúlkan á LPGA“ sem verður kynnt.

Öfugt við Ólafíu Þórunni, sem var í 1. skipti að taka þátt í Q-school LPGA,  þá var Jaye  í 2. sinn í Q-school …. og þetta var í 2. skiptið sem hún sigraði!!!

Jaye Marie er fædd 2. febrúar 1994 og því 23 ára. Foreldrar hennar eru Stephanie og Donnie Green og hún á einn bróður, sem var á pokanum hjá henni í lokaúrtökumótinu en það er  Matt Green Hún byrjaði að spila golf 11 ára og segir pabba sinn hafa haft mest áhrif á golfferil sinn.

Sem áhugamaður í golfi sigraði hún m.a. South Atlantic Amateur (Sally) Championship árið 2011. Og eins náði hún besta árangri sínum í móti á LPGA þegar hún keppti 2011 í Daytona Beach Invitational, í 2. deildinni, þar sem hún varð í 2. sæti. Green var síðan sama ár (2011) í U.S. Junior Solheim Cup Team.

Árið 2013 gerðist Green atvinnumaður í golfi og keppti á Symetra Tour þar sem hún náði þrívegis topp-10 áröngrum.

Hún fór í Q-school LPGA 2013 og sigraði á nýju metskori 29 undir pari og gulltryggði sér þannig keppnisrétt sinn á LPGA árið 2014. Það ár lék Jaye Marie í 22 mótum og náði niðurskurði í 11. Árið þar á eftir, 2015 gekk betur Jaye Marie náði niðurskurði í 17 af 27 mótum, sem hún spilaði í og í fyrra dalaði hún aðeins lék aðeins í 21 móti og náði niðurskurði í 9. Hún fór því aftur í Q-school LPGA…. og sigraði.

Jaye Marie hefir þegar á núverandi keppnistímabili (2017) vakið athygli á sér fyrir að pósa í bikiní á Bahamasströndu, þar sem hún var að slá golfbolta – Sjá grein Golf 1 um það með því að SMELLA HÉR: 

Uppáhaldstómstundir Jaye Marie utan golfsins eru paddle boarding, matreiðsla og Crossfit.

Komast má á Twitter síðu Jaye Marie með því að SMELLA HÉR: