Nýju stúlkurnar á LPGA 2017: Dani Holmqvist (37/54)
Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.
155 þátttakendur voru að þessu sinni.
Nú hafa þær stúlkur verið kynntar sem rétt sluppu inn á LPGA og eru með takmarkaðan keppnisrétt 2017.
Nú næst verða þær ótrúlegu heppnu, sem deildu 14. sætinu og hlutu kortið sitt og FULLAN keppnisrétt á LPGA kynntar – en allar léku þær á samtals 5 undir pari, 355 höggum.
Þetta er þær Katherine Perry frá Bandaríkjunum (74 70 70 71 70); Dani Holmqvist frá Svíþjóð (71 70 71 72 71); Regan De Guzman frá Filippseyjum (71 68 70 74 72); Dori Carter frá Bandaríkjunum (75 69 74 63 74) og Nasa Hataoka frá Japan (68 65 69 75 78).
Byrjað verður á því að kynna Dani Holmqvist frá Svíþjóð.
Dani fæddist 3. maí 1988 í Bern, Sviss og er því 28 ára. Hún komst á LET í gegnum Lalla Aicha Tour School árið 2012 og þá kynnti Golf 1 Dani eða Danielu og á sú kynning allt eins við í dag – sjá með því að SMELLA HÉR:
Árið eftir komst Dani í golffréttirnar þegar hún var við keppni í Ástralíu og var bitin af svörtu ekkjunni, eitraðri könguló og notaði tí til að pota eiturbroddinum úr og hélt áfram keppni – sjá með því að SMELLA HÉR:
Nú er Dani sem sagt komin með fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2017 eftir að hafa spilað á LET í 5 ár eða frá 2012.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
