Nýju stúlkurnar á LPGA 2017: Angel Yin (52/54)
Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.
155 þátttakendur voru að þessu sinni.
Næst verða þær kynntar sem deildu 3. sætinu og hlutu kortið sitt og báðar FULLAN keppnisrétt á LPGA.
Þetta eru þær Angel Yin og Sadena Parks báðar frá Bandaríkjunum.
Þær spiluðu báðar á 11 undir pari, 349 höggum: Angel Yin (74 67 69 68 71 ) og Sadena Parks (69 72 67 68 73).
Búið er að kynna Sadenu Parks og í dag verður Angel Yin kynnt lítillega.
Angel Yin fæddist í borg englanna í Monterey Park, Los Angeles, 3. október 1998 og er því aðeins 18 ára.
Hún er ótrúleg sleggja og því varð hún þrátt fyrir ungan aldur í 3. sæti lokaúrtökumóts LPGA.
Yin gerðist atvinnumaður í golfi 1. janúar 2016, þá aðeins 17 ára.
Yin segir uppáhaldskylfinga sína vera: Tiger Woods & Anniku Sörenstam.
Uppáhaldsiðja Yin utan golfsins er að lesa, ferðast, lenda í ævintýrum og borða og sofa.
Yin er vinkona Ólafíu Þórunnar „okkar“ Kristinsdóttur.
Á fyrsta mótinu á LPGA í Bahamas varð hún T-60 og komst gegnum niðurskurð sem er frábær árangur hjá svona ungri stúlku eins og Yin, sem er að stíga sín fyrstu skref á LPGA.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
