Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2016 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2017: Allyssa Ferrell (8/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

11 stúlkur voru jafnar í 44. sæti og hljóta allar takmarkaðan spilarétt. Þetta voru þær: Brianna Do, Augusta James, Emily Collins, Caroline Inglis, Allyssa Ferrell, Haeji Kang, Benyapa Niphatsophon, Alejandra Llaneza, Hannah Burke, Celine Boutier og Krista Puisite.

Allar léku þær á 3 undir pari, 363 höggum.

Brianna Do, Haeji Kang, Benyapa Niphatsophon, Alejandra Llaneza, Celine Boutier, Hannah Burke og Krista Puisite hafa þegar verið kynntar til sögunnar og í dag verður Allyssa Ferrell kynnt.

Allyssa Ferrell

Allyssa Ferrell fæddist 15. janúar 1992 og er því 24 ára.  Hún byrjaði að spila golf 10 ára í heimabæ sínum Edgerton í Michigan.  Hún spilaði golf í menntaskóla, (Edgerton Highschool) og var síðan í Michigan State, þaðan sem hún útskrifaðist 2014.

Sjá má afrek Allyssu í bandaríska háskólagolfinu, sem hún lék í með liði Michigan State 2010-2014 með því að SMELLA HÉR: 

Árið 2015 var Allyssa á Symetra Tour sem er 2. deildin í bandarísku kvennagolfi.  Þar spilaði hún í 7 mótum og náði niðurskurði í 6 þeirra og vann sér inn  $4,625 og var í 119. sæti á peningalistanum.

Allyssu finnst gaman að spila á píanó.