Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 11. 2017 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2017: Sadena Parks (51/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

Næst verða þær kynntar sem deildu 3. sætinu og hlutu kortið sitt og báðar FULLAN keppnisrétt á LPGA.

Þetta eru þær Angel Yin og Sadena Parks báðar frá Bandaríkjunum.

Þær spiluðu báðar á 11 undir pari, 349 höggum: Angel Yin (74 67 69 68 71 ) og Sadena Parks  (69 72 67 68 73).

Byrjað verður á því að kynna Sadenu Parks í dag.

Sadena Parks

Sadena Parks

Sadena Parks fæddist í Raleigh Norður-Karólínu, 4. maí 1990 og er því 26 ára.  Þegar foreldrar hennar skyldu flutti hún með pabba sínum til Washington. Þar var hún í Bethel High School í Spanaway og var síðan 4 semestur í University of Washington þar sem hún lagði stund á bandaríska þjóðfræði. (American Ethnic Studies). Hún byrjaði að spila golf 9 ára.

Sadena segir pabba sinn hafa haft mest áhrif á feril sinn.

Sadena gerðist atvinnumaður i golfi 2013.

Meðal áhugamála Sadenu eru verslunaferðir, að horfa á Hulu og snæða úti með vinum.

Sadena tók fyrst þátt í lokaúrtökumótið 2012 og komst þá þegar á Symetra Tour, sem er 2. deildin í bandarísku kvengolfi.

Hún sigraði í 2 mótum á Symetra Tour árið 2014; SEFCU Championship og New England Charity Classic.

Sadena komst síðan á LPGA árið 2015 með því að vera meðal efstu 10 á peningalista Symetra Tour og var fyrsta blökkukonan til þess að komast þannig á LPGA.

Hún þykir meðal fegurstu kylfinga á LPGA.