Ragnheiður Jónsdóttir | október. 13. 2016 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2016: Cyna Rodriguez (46/49)

Lokaúrtökumót LPGA, m.ö.o Q-school LPGA fór fram 30. nóvember – 6. desember 2015.

Mótið fór venju skv. fram á LPGA International á Daytona Beach í Flórída.

Tuttugu stúlkur hlutu kortið sitt á LPGA í gegnum Q-school og þær sem urðu í 21. – 45 + þ.e., þær sem urðu í 21.-45. sæti eða jafnar í síðarnefnda sætinu hlutu takmarkaðan þátttökurétt í mótum LPGA.

Alls hlutu 49 stúlkur þátttökurétt á LPGA; 20 fullan þátttökurétt og 29 takmarkaðan.

Alls hafa 45 stúlkur verið kynntar og nú er komið að þeim tveimur sem deildu 4. sætinu; Cynu Rodriguez frá Filipseyjum og Maude Aimee Leblanc frá Kanada, sem þegar hefir verið kynnt.

Því er það Cyna Rodriguez, sem kynnt verður í dag.

Cyna Rodriguez fæddist 8. september 1991 og er því nýorðin 25 ára. Hún veit það eflaust ekki en hún á sama afmælisdag og GR-ingarnir Þórður Rafn Gissurarson og Ólafur William Hand. 

Cyna býr í höfuðborg Filippseyja, Manilla og var ein af fyrstu Filippseyingunum til þess að hljóta kortið á PGA Tour frá því að Jennifer Rosales tókst það árið 1999.

Cyna varð T-4 og var ein af aðeins 3 þátttakendum í lokaúrtökumótinu sem var með alla hringi sína undir pari, eða samtals 10 undir pari, 350 höggum (71 71 70 67 71).

Hún er þrefaldur sigurvegari á stigalistanum á  Ladies Philippine Golf Tour.

Cyna spilaði jafnframt í bandaríska háskólagolfinu með liði USC.

Meðfram golfinu vinnur hún fyrir góðgerðarstofnun sem heitir Chosen Children Village, sem er munaðarleysingjaheimili fyrir líkamlega og andlega fötluð börn á Filippseyjum.