Nýju stúlkurnar á LPGA 2016: Demi Runas (18/49)
Lokaúrtökumót LPGA, möo Q-school LPGA fór fram 30. nóvember – 6. desember 2015.
Mótið fór venju skv. fram á LPGA International á Daytona Beach í Flórída.
Tuttugu stúlkur hlutu kortið sitt á LPGA í gegnum Q-school og þær sem urðu í 21. – 45 + þ.e., þær sem urðu í 21.-45. sæti eða jafnar í síðarnefnda sætinu hlutu takmarkaðan þátttökurétt í mótum LPGA.
Alls hlutu 49 stúlkur þátttökurétt á LPGA; 20 fullan þátttökurétt og 29 takmarkaðan.
Alls hafa 14 stúlkur verið kynntar, 7 sem urðu T-43 í lokaúrtökumótinu og voru neðstar af þeim sem hlutu þátttökurétt á LPGA; síðan Caroline Westrup og Samantha Richdale, sem deildu 41. sætinu og svo þær 5 sem urðu í 36. sæti þ.e. Karlin Beck, Nicole Jeray, Ani Gulugian og Ssu Chia Cheng og nú síðast Anne-Catherine Tanguay frá Kanada.
Nú verður haldið áfram og næst kynntar þær 4 sem deildu 32. sætinu en það eru: Su Oh; Demi Runas; Heather Bowie Young og Pavarisa Yoktuan. Þær hafa allar verið kynntar nema Demi Runas, sem kynnt verður í dag.
Demi Runas fæddist í Los Angeles, Kaliforníu, 20. ágúst 1992 og er því 23 ára.
Demi byrjaði að spila golf aðeins 4 ára. Hún segir þjálfara sinn í háskólagolfinu, Anne Walker, vera þann aðila sem hafi haft mest áhrif á golfferil sinn. Lesa á um afrek Demi Runas í bandaríska háskólagolfinu, en hún lék með US Davis með því að SMELLA HÉR:
Meðal áhugamála Demi eru: Yoga, að baka, láta laga neglurnar og fara í ræktina.
Hápunktar á ferli Demi Runas:
*Hún varð í 9. sæti á Volvik Race for the Card peningalistanum og varð T-2 á Symetra Tour Championship og fór því upp úr 15. í 9. sætið!
* Var 2 sinnum í 2. sæti og 3 sinnum meðal efstu 10 á síðasta keppnistímabili á Symetra.
* Varð í 3. sæti á Gaelle Truet Rookie of the Year kosningunni
* Var þrívesgis valin Big West leikmaður ársins í UC Davis, í bandaríska háskólagolfinu
* Sigraði 2013 Big West Women’s Golf Championship og var í forystu í liði sínu þegar það hlaut Big West conference titlana
Four time First Team All Big West
Runas þykir með kynþokkafyllri kvenkylfingum á LPGA og má sjá myndaseríu af henni með því að SMELLA HÉR: og með því að SMELLA HÉR: en Runas hefir birtst í mörgum myndaseríum og viðtölum, sem einn kynþokkafyllsti kylfingurinn á LPGA, þó hún sé ekkert þekkt og reyndar rétt að byrja.
Sjá má viðtal við Runas í „The most beautiful women in golf“ með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
