Nýju stúlkurnar á LPGA 2016: Caroline Westrup (8/49)
Lokaúrtökumót LPGA, möo Q-school LPGA fór fram 30. nóvember – 6. desember 2015.
Mótið fór venju skv. fram á LPGA International á Daytona Beach í Flórída.
Tuttugu stúlkur hlutu kortið sitt á LPGA í gegnum Q-school og þær sem urðu í 21. – 45 + þ.e., þær sem urðu í 21.-45. sæti eða jafnar í síðarnefnda sætinu hlutu takmarkaðan þátttökurétt í mótum LPGA.
Alls hlutu 49 stúlkur þátttökurétt á LPGA; 20 fullan þátttökurétt og 29 takmarkaðan.
Alls hafa 7 stúlkur verið kynntar, sem urðu T-43 í lokaúrtökumótinu og voru neðstar af þeim sem hlutu þátttökurétt á LPGA; en væntanlega hamingjusamar með að hljóta spilarétt. Þær rétt sluppu inn.
Næst verða þær kynntar sem deildu 41. sætinu þ.e. Samantha Richdale og Caroline Westrup og verður byrjað á Westrup.
Caroline Westrup fæddist 11. febrúar 1986 og er því 29 ára. Hún byrjaði að spila golf 6 ára og segir foreldra sína þá einstaklinga sem hafi haft mest áhrif á feril sinn.
Caroline útskrifaðist frá Florida State University með gráðu í íþróttafræðum árið 2009. Hún var búin að spila með golfliði skólans í 4 ár. Sama ár gerðist hún atvinnumaður í golfi.
Áhugamál Westrup eru að fara í verslunaferðir eða íþróttaviðburði og vera með fjölskyldu sinni og vinum. Hún komst á LPGA í 2. tilraun sinni, þ.e. var líkt og hinar á undan á samtals 2 undir pari 358 höggum (69 74 75 72 68) og er nú kominn með takmarkaðan spilarétt á LPGA.
Westrup hefir frá unglinsaldri verið í golflandsliði Svía. Meðal hápunkta á áhugamannsferli Westrup er eftirfarandi:
* Hún sigraði í World Amateur Championship 2006
* Hún vann 5 sinnum í einstaklingskeppnum meðan hún var í Florida State University.
* Hún var tvívegis í NGCA All-American First Team selection (2006, 2007).
* Westrup var fjórfaldur All-Atlantic Coast Conference (ACC) Scholar Athlete selection (2006-2009).
* Westrup var tvisvar NGCA All-American Second Team selection.
* Útskriftarár sitt var Westrup NGCA All-American Honorable Mention selection
Eftir útskrift frá Florida State spilaði Westrup fyrst á Symetra Tour árið 2010 og síðan á LET 2011 og á báðum mótaröðum síðan þá.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

