Nýju stúlkurnar á LPGA 2016: Ashlan Ramsay (42/49)
Lokaúrtökumót LPGA, m.ö.o Q-school LPGA fór fram 30. nóvember – 6. desember 2015.
Mótið fór venju skv. fram á LPGA International á Daytona Beach í Flórída.
Tuttugu stúlkur hlutu kortið sitt á LPGA í gegnum Q-school og þær sem urðu í 21. – 45 + þ.e., þær sem urðu í 21.-45. sæti eða jafnar í síðarnefnda sætinu hlutu takmarkaðan þátttökurétt í mótum LPGA.
Alls hlutu 49 stúlkur þátttökurétt á LPGA; 20 fullan þátttökurétt og 29 takmarkaðan.
Alls hefir 41 stúlka verið kynnt og nú er komið að þeim hinni af tveimur sem deildu 8. sætinu en ísraelska stúlkan Laetitia Beck, var önnur þeirra og hefir þegar verið kynnt.
Í dag verður Ashlan Ramsey kynnt.
Ashlan Ramsay fæddist 3. desember 1995 og er því 20 ára. Ashlan er frá Milledgeville, Georgia. Hún var T-24 fyrir lokahringinn á úrtökumótinu en sýndi stáltaugar og náði frábærum lokahring upp á 5 undir pari og náði að hífa sig upp í T-8 stöðu, sem tryggði henni kortið á LPGA.
Ramsey spilaði í 10 mótum á Symetra Tour árið 2015 og var besta niðurstaða hennar T-11 árangur í Tullymore Classic.
Hún sigraði einnig á Georgia Women’s Open árið 2015.
Ramsey var eitt ár í bandaríska háskólagolfinu þar sem hún spilaði með golfliði Clemson og sigraði tvívegis, sem ávann henni sæti í liði Bandaríkjanna í Curtis Cup 2014.
Eins varð Ramsey í 2. sæti á U.S. Pub Links 2012.
Komast má á flotta heimasíðu Ramsay með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
