Nýju stúlkurnar á LPGA 2016: Ani Gulugian (11/49)
Lokaúrtökumót LPGA, möo Q-school LPGA fór fram 30. nóvember – 6. desember 2015.
Mótið fór venju skv. fram á LPGA International á Daytona Beach í Flórída.
Tuttugu stúlkur hlutu kortið sitt á LPGA í gegnum Q-school og þær sem urðu í 21. – 45 + þ.e., þær sem urðu í 21.-45. sæti eða jafnar í síðarnefnda sætinu hlutu takmarkaðan þátttökurétt í mótum LPGA.
Alls hlutu 49 stúlkur þátttökurétt á LPGA; 20 fullan þátttökurétt og 29 takmarkaðan.
Alls hafa 9 stúlkur verið kynntar, 7 sem urðu T-43 í lokaúrtökumótinu og voru neðstar af þeim sem hlutu þátttökurétt á LPGA; en væntanlega hamingjusamar með að hljóta spilarétt og síðan Caroline Westrup og Samantha Richdale, sem deildu 41. sætinu.
Næstar verða kynntar þær 5 stúlkur sem deildu 36. sætinu og voru allar með heildarskor eftir 5 hringi upp á slétt par. Þetta eru þær Karlin Beck, Nicole Jeray og Ani Gulugian frá Bandaríkjunum; Anne-Catherine Tanguay frá Kanada og Ssu Chia Cheng frá Tapei.
Karlin Beck hefir þegar verið kynnt og í dag verður Ani Guiugian kynnt til sögunnar.
Ani Gulugian fæddist í Mission Viejo þann 25. janúar 1992 og er því 23 ára . Hún er frá Irvine, Kaliforníu og býr þar.
Ani útskrifaðist nú nýlega frá UCLA með próf í sögu og spilaði sem nýliði á Symetra Tour 2015; varð m.a. í 34. sæti á Volvik Race for the Card peningalistanum. Hún varð þrívegis meðal efstu 10.
Til þess að sjá afrek Gulugian í bandaríska háskólagolfinu með UCLA SMELLIÐ HÉR:
Ani Gulugian er sú fyrsta af armensku bergi brotin sem keppir á LPGA.
Uppáhaldsíþróttamaður hennar er Ronda Rousey.
Systir Ani, Ari,spilar enn í bandaríska háskólagolfinu með liði University of Arizona.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
