Nýju stúlkurnar á LPGA 2016: Pannarat Thanapolboonyaras (32/49)
Lokaúrtökumót LPGA, möo Q-school LPGA fór fram 30. nóvember – 6. desember 2015.
Mótið fór venju skv. fram á LPGA International á Daytona Beach í Flórída.
Tuttugu stúlkur hlutu kortið sitt á LPGA í gegnum Q-school og þær sem urðu í 21. – 45 + þ.e., þær sem urðu í 21.-45. sæti eða jafnar í síðarnefnda sætinu hlutu takmarkaðan þátttökurétt í mótum LPGA.
Alls hlutu 49 stúlkur þátttökurétt á LPGA; 20 fullan þátttökurétt og 29 takmarkaðan.
Alls hafa 31 stúlka verið kynntar og nú verða kynntar þær sem deildu 15. sætinu en það eru þær: Pannarat Thanapolboonyaras, frá Thaílandi; Lindy Duncan, frá Bandaríkjunum; Bertine Strauss, frá Suður-Afríku og Holly Clyburn, frá Englandi.

Pannarat
Í dag verður Pannarat Thanapolboonyaras kynnt.
Pannarat fæddist 29. desember 1997 og er því aðeins 18 ára.
Hún er 1,70 á hæð og 55 kg að þyngd. Pannarat gerðist atvinnumaður í golfi 2015 og komst á bandaríska LPGA í fyrstu tilraun, yngst allra sem hlutu fullan keppnisrétt!
Þar áður spilaði hún í CLPGA eða China LPGA og á thaílenska LPGA. Á thaílenska LPGA spilaði Pannarat í 5 mótum árið 2015 og með góðum árangri á þeim varð hún 13. á peningalista mótaraðarinnar.
Pannarat hefir samt sem áður ekkert gengið sérlega vel það sem af er fyrsta keppnistímabils síns á LPGA.
Af 10 mótum sem hún hefir spilað í á keppnistímabilinu á LPGA hefir henni aðeins 3 sinnum tekist að komast í gegnum niðurskurð og besti árangurinn er í Volvik mótinu sem fór fram 26.-29. maí s.l. en þar varð Pannarat T-27 og vann sér inn tékka upp á $ 9.253.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
