Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2016 | 12:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2016: Briana Mao — (20/49)

Lokaúrtökumót LPGA, möo Q-school LPGA fór fram 30. nóvember – 6. desember 2015.

Mótið fór venju skv. fram á LPGA International á Daytona Beach í Flórída.

Tuttugu stúlkur hlutu kortið sitt á LPGA í gegnum Q-school og þær sem urðu í 21. – 45 + þ.e., þær sem urðu í 21.-45. sæti eða jafnar í síðarnefnda sætinu hlutu takmarkaðan þátttökurétt í mótum LPGA.

Alls hlutu 49 stúlkur þátttökurétt á LPGA; 20 fullan þátttökurétt og 29 takmarkaðan.

Alls hafa 18 stúlkur verið kynntar, 7 sem urðu T-43 í lokaúrtökumótinu og voru neðstar af þeim sem hlutu þátttökurétt á LPGA; síðan Caroline Westrup og Samantha Richdale, sem deildu 41. sætinu; þær 5 sem urðu í 36. sæti þ.e. Karlin Beck, Nicole Jeray, Ani Gulugian og Ssu Chia Cheng og Anne-Catherine Tanguay frá Kanada og svo þær 4 sem deildu 32. sætinu: Su Oh; Demi Runas; Heather Bowie Young og Pavarisa Yoktuan.

Í dag verður byrjað að kynna þær 6 sem deildu 26. sætinu en það eru: Briana Mao frá Bandaríkjunum; Marion Ricordeau frá Frakklandi; Prima Thammaraks frá Thaílandi; Jiayi Zhou, frá Kína; Brittany Altomare frá Bandaríkjunum og stúlkuna með langa eftirnafið Sherman Santiwiwatthanaphong, frá Thaílandi.  Ricordeau hefir þegar verið kynnt og í dag verður fram haldið með Briönu Mao.

Briana Mao fæddist 26. ágúst 1993 og er því 22 ára.

Mao býr í Sacramento, Kaliforníu. Hún útskrifaðist nýlega frá University of Virginia og fékk takmarkaðan spilarétt á LPGA, en þetta er í fyrsta sinn sem hún tók þátt í lokaúrtökumóti.

Mao lauk 2014-15 keppnistímabili sínu í All-ACC liðinu og var valin nr. 67 af Golfweek.

Hún lauk ferli sínum í bandaríska háskólagolfinu með því að vera 8 sinnum með al efstu 10.

Mao vann næstum því the ACC Championship, en tapaði í bráðabana.

Hún komst einnig á 16 hring á U.S. Women’s Amateur Pub Links árið 2013.

Áður en hún gerðist atvinnumaður í golfi var draumur hennar að verða hjartaskurðlæknir.