Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 11. 2016 | 15:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2016: Marion Ricordeau (19/49)

Lokaúrtökumót LPGA, möo Q-school LPGA fór fram 30. nóvember – 6. desember 2015.

Mótið fór venju skv. fram á LPGA International á Daytona Beach í Flórída.

Tuttugu stúlkur hlutu kortið sitt á LPGA í gegnum Q-school og þær sem urðu í 21. – 45 + þ.e., þær sem urðu í 21.-45. sæti eða jafnar í síðarnefnda sætinu hlutu takmarkaðan þátttökurétt í mótum LPGA.

Alls hlutu 49 stúlkur þátttökurétt á LPGA; 20 fullan þátttökurétt og 29 takmarkaðan.

Alls hafa 18 stúlkur verið kynntar, 7 sem urðu T-43 í lokaúrtökumótinu og voru neðstar af þeim sem hlutu þátttökurétt á LPGA; síðan Caroline Westrup og Samantha Richdale, sem deildu 41. sætinu;  þær 5 sem urðu í 36. sæti þ.e. Karlin Beck, Nicole Jeray, Ani Gulugian og Ssu Chia Cheng og Anne-Catherine Tanguay frá Kanada og svo þær 4 sem deildu 32. sætinu: Su Oh; Demi Runas; Heather Bowie Young og Pavarisa Yoktuan.

Í dag verður byrjað að kynna þær 6 sem deildu 26. sætinu en það eru: Briana Mao frá Bandaríkjunum; Marion Ricordeau frá Frakklandi; Prima Thammaraks frá Thaílandi; Jiayi Zhou, frá Kína;  Brittany Altomare frá Bandaríkjunum og   stúlkuna með langa eftirnafið Sherman Santiwiwatthanaphong, frá Thaílandi.  Byrjað verður á Ricordeau.

Marion Ricordeau fæddist 21. ágúst 1986 og er því 29 ára. Hún lauk mennskóla 2004 og var síðan í DUT Techniques de Commercialisation til júní 2006.

Marion byrjaði í golfi 10 ára og það voru Eric Censier (Reims Golf Course professional) og Cyrille Buvry (Ailette Golf Course professional), sem voru golfkennarar hennar. Hæfileikar Ricordeau komu fljótt í ljós og hún þótti nógu góð til þess að vinna með Frédéric Regard og Eric Bournazel í Picardie mótaröðinni.

Hér fara helstu afrekin í tímaröð:

Veturinn 2006/2007  Æfingar í Golf Leadbetter Academy, í Sarasota (Flórída).

September 2007 Pôle France í Toulouse. Upphaf samvinnu við Karine Mathiot og Fabrice Ruiz. Marion var franskur meistari í maí 2009 og eftir það var hún þátttakandi í fleiri alþjóðmótum á vegum Evrópumótaraðar kvenna.  Ricordeau er í franska kvennalandsliðinu í golfi og hún er í liði Meginlands Evrópu í kvennagolfinu.

2008/2009: Spilaði í áhugamannamótum. Sigraði á the World University Individual Championship í Sun City (Suður-Afríku ). Spilaði á Opna franska á LET bæði árin og náði niðurskurði bæði skiptin.

2010: Gerðist atvinnumaður í október.

2011: Spilaði aðallega á LET Access en líka áthe Ladies European Tour (LET).

2012: Spilaði eingöngu á the LET Access ( varð m.a. í 2. sæti á peningalistanum )og einnig í nokkrum mótum á Ladies European Tour. Fékk í fyrsta skipti kortið sitt á LET 2013.

2013: Spilaði allt keppnistímabilið á LET og varð í 77. sæti á peningalistanum og hélt því korti sínu 2014 og síðan aftur 2015.

Besti árangur hennar er 2. sætið á Xiamen Open 2012. Hún vann m.a. LET Access Series mót árið  2012.

Ricordeau segir  So Yeon Ryu vera uppáhalds LPGA-kvenkylfinginn sinn.