Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Sakura Yokomine (31/45)
Nú hafa allar stúlkurnar verið kynntar sem urðu í 18.-45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014.
Þrjár (þ.e. þær í 18.-20. sæti) með fullan spilarétt eftir 7 manna bráðabana og hinar sem urðu í 21.-45. sæti með takmarkaðan spilarétt.
Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída.
Sjö kylfingar deildu 11. -17. sætinu, en þær léku allar á samtals 5 undir pari, hver.
Þetta eru þær: frænka Tiger: Cheyenne Woods, Therese Koelbaek frá Danmörku, franski kylfingurinn Perrine Delacour, SooBin Kim frá Suður-Kóreu, Sakura Yokomine frá Japan, Sophia Popov frá Þýskalandi og Ju Young Park, frá Suður-Kóreu.
Ju Young Park og Sophia Popov hafa þegar verið kynntar, en sú sem kynnt verður í dag er Sakura Yokomine.
Yokomine lék á samtals 5 undir pari, 355 höggum (73 71 66 70 75)
Sakura Yokomine (横峯さくら Yokomine Sakura) fæddist 13. desember 1985 í Kanoya, Kagoshima í Japan og er því 29 ára.
Hún er þungavigtarkvenkylfingur frá Japan, hefir mestmegnis spilað á japanska LPGA þar sem hún hefir sigrað 23 sinnum.
Hún komst á bandaríska LPGA s.l. desember í fyrstu tilraun sinni og hefir slegið í gegn – er yfirleitt meðal efstu kylfinga í mótum, sem hún hefir spilað í, en hefir enn ekki tekist að sigra í Bandaríkjunum.
Hún er með marga styrktaraðila en þeir helstu eru: Epson, Srixon, Asahi Soft Drinks, Le Coq Sportif (franskur golfvöruframleiðandi sem sér Yokomine m.a. fyrir öllum golffatnaði) ANA og Sato.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
