Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Ryann O´Toole (41/45)
Nú hafa allar stúlkurnar verið kynntar sem urðu í 6.-45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014.
Þær sem eru í 1.-20. sæti eru með fullan spilarétt en hinar sem urðu í 21.-45. sæti með takmarkaðan spilarétt.
Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída.
Nú er komið að því að kynna þann kylfing, sem varð í 5. sæti í mótinu; bandaríska kylfinginn Ryann O´Toole.
Ryann lék á samtals 8 undir pari, 352 höggum (67 71 73 71 70) á lokaúrtökumótinu.
Ryan O´Toole fæddist í Agoura Hills, í Kaliforníu 11. febrúar 1987 og er því 28 ára. O´Toole býr í San Clemente í Kaliforníu, en þaðan útskrifaðist hún m.a. úr San Clemente High School 2005. O´Toole á m.a. vallarmetið í Colwood Golf Club í Victoria, British Columbia, í Kanada, upp á 66 högg.
Ryan O´Toole gerðist atvinnumaður í golfi 2009 og hefir sigrað þrívegis á Symetra Tour.
Árið 2010 var O´Toole m.a. í golfraunveruleikaþættinum The Big Break Sandals Resort á Golf Channel. O’Toole varð í 6. sæti af 11 kylfingum sem þátt tóku.
Það kom mörgum á óvart þegar hún var valin í 2011 Solheim Cup lið Bandaríkjanna af Rosie Jones fyrirliða.
Sjá má viðtal Golf Digest við Ryann O´Toole 2011 með því að SMELLA HÉR:
Í dag, 2015 er O´Toole í 236. sæti á Rolex-heimslista kvenna.
Ryan O´Toole hefir m.a. verið á lista yfir heitustu kvenkylfinga LPGA mótaraðarinnar sjá t.a.m. með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

