Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2014 | 20:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Katy Harris (3/45)

Katy Harris var ein af 3 stúlkum sem varð í 43.-45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA.  Henni þykir svipa svolítið til spænska kylfingsins Beatriz Recari

Katy er fædd 15. ágúst 1979 og er því 35 ára.

Harris byrjaði að spila golf 3 ára og segir foreldra sína hafa haft mestu áhrif á golfferil sinn.

Harris spilaði golf með golfliði Louisiana State University þar sem hún átti 20 topp-10 árangra og var 2001 NGCA All-American First Team selection. Harris vann Indiana Women’s PGA Open Championship 1997 og 1998 Indiana Women’s Amateur Championship.

Árið 2010 gerðist Harris atvinnumaður í golfi og lauk keppni T-39 í Q-school LPGA og hlaut takmarkaðan spilarétt. Hún spilaði á Symetra Tour 2011 þar sem besti árangur hennar var 25. sætið á Alliance Bank Golf Classic. Árið 2010 vann Harris mót á CN Canadian Women’s Tour í Club de golf Beloeil.

Katy giftist Chad Harris 17. júní 2000 og eignaðist son sinn Owen 2006 og dóttur sína Emmu 2008. Katy á tvo bræður, Jeremy og David. Meðal áhugamála hennar utan golfsins er að gegna móðurhlutverkinu, að vera í líkamsrækt og gera það sem sjaldnast er tími fyrir að lesa og taka þátt í kirkjustarfi.

Katy Harris komst á LPGA í 2. tilraun sinni þ.e. 2013 og var þá á sléttu pari  þ.e. 70-78-72-70 – 70 – 360 (E)

Nú er Katy sem sagt komin með takmarkaðan spilarétt á LPGA sem þýðir að hún fær að spila á Symetra Tour og verður boðið á nokkur LPGA mót.