Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 25. 2015 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Karlin Beck (28/45)

Það voru 7 stúlkur sem deildu 18.-24. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014.

Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á  LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída.

Aðeins 20 stúlkur fengu fullan spilarétt á LPGA 2015 og því varð að fara fram bráðabani milli þessa 7 stúlkna og komust 3 áfram og fengu fullan spilarétt þ.e.: Laetitia Beck, Garrett Phillips og Karlin Beck en hinar 4 fengu aðeins takmarkaðan spilarétt þ.e.: Julie Yang, Jacqui Concolino, Stephanie Meadow og Casey Grice.

Karlin Beck.

Karlin Beck.

Karlin Beck var ein af þeim 3 heppnu sem unnu bráðabanann og er með fullan spilarétt á LPGA keppnistímabilið 2015. Laetitia Beck og Garrett Phillips hafa nú þegar verið kynntar.

Beck lék eins og allar hinar sex á samtals 4 undir pari, 356 höggum (69 71 71 67 78 ) og hlaut $1,242 í verðlaunafé líkt og hinar 2 sem rétt sluppu í gegn eftir æsilegan 7 stúlkna bráðabana.

Karlin Beck er fædd 6. ágúst 1987 í Montgomery, Alabama og er því 27 ára. Hún er dóttir Steve og Kathy og á eina systur Kinley.  Heimaklúbbur Karlin er Arrowhead Country Club, í Alabama.

Hún byrjaði að spila golf 12 ára og segir afa sinn þá manneskju sem hafi haft mest áhrif á golfferil sinn.

Meðal áhugamála Beck eru tennis, kvikmyndir, hérar og hún segir sjálf að hún sé fréttafíkill.

Á háskólaárum sínum lék hún með Auburn Tigers í bandaríska háskólagolfinu og útskrifaðist frá Auburn University, sem hagfræðingur með tvöfalda undirgráðu (ens. double minor) í frönsku og alþjóða viðskiptum, árið 2010. Til þess að sjá afrek Karlin á háskólaárum hennar SMELLIÐ HÉR:

Karlin Beck gerðist atvinnumaður í golfi, eftir útskrift úr háskóla, þ.e. í maí 2010. Hún spilaði fyrst á Futures (nú Symetra Tour) árið 2011 og var besti árangur hennar þar T-16 árangur á Tate & Lyle Players Championship í Decatur, Ill. Hún komst strax á LPGA í lok árs 2011 í fyrstu tilraun sinni sem hún reyndi við Q-school. Henni gekk ekki vel 2012, en besti árangurinn var 46. sætið á Navistar LPGA Classic.

Árið 2014 var henni ekki heldur gott og varð hún aftur að fara í lokaúrtökumótið í lok árs 2014 og sem sagt rétt slapp inn á LPGA mótaröðina með fulla spilarétt.

Karlin segir að ef hún hefði ekki valið sér LPGA sem starfsvettvang myndi hún gjarnan hafa viljað verða endurskoðandi kvikmyndavers.