Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2014 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Elizabeth Nagel (5/45)

Það voru 8 stúlkur sem deildu 35.-42. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014.

Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á  LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída.

Ein þessara 8 var bandaríska stúlkan Elizabeth Nagel.

Elizabeth Nagel fæddist 4. nóvember 1991 og er því nýorðin 23 ára.  Hún er dóttir John og Nancy Nagel, en pabbi hennar er PGA golfkennari.

Elizabeth eða Liz eins og hún er alltaf kölluð útskrifaðist frá Michigan State háskólanum með gráðu í ferðamálafræði (ens. hospitality business).

Liz Nagel segist hafa tekið fyrstu golfsveiflu sína 4 ára en hafi ekki byrjað a keppa í golfi fyrr en 8 ára.

Uppáhaldsgolfvellir Nagel eru Crystal Downs,  Egypt Valley og Crystal Mountain.

Nagel átti ágætis áhugamannaferil og stóð sig vel í bandaríska háskólagolfinu og þaðan er hún nú þegar komin með takmarkaðan keppnisrétt á bestu atvinnumótaröð heims, sem er stórglæsilegur árangur hjá þessari ungu stúlku frá Michigan.

Fræðast má nánar um afrek Liz Nagel í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR: