Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Moriya Jutanugarn (27. grein af 27)
Hér er komið að því að kynna síðustu stúlkuna, sem deildi 1. sætinu á lokaúrtökumóti Q-school LPGA sem fram fór á Daytona Beach 28. nóvember – 2. desember á síðasta ári 2012. Rebecca Lee-Bentham, frá Kanada, var önnur þeirra sem náði að vera í eftirsótta 1. sætinu, en hún deildi því með þeirri sem kynnt verður hér að síðustu Moriyu Jutanugarn frá Thaílandi.
Moriya Jutanugarn fæddist 28. júlí 1994 í Bankok, Thaílandi. Hún veit það líklega ekki en hún á sama afmælisdag og Amy Yang og Árný Lilja Árnadóttir, í GSS.
Meðal afreka Moriyu er að hún vann South Atlantic Ladies Amateur Championship (SALLY) í fyrra, árið 2012 og varð í 2. sæti á US Women´s Amateur, árið 2011. Þessi 18 ára stúlka komst á LPGA í fyrstu og einu tilraun sinni og er vænst mikils af henni.
Þess mætti geta að systir Moriya, Ariya Jutanugarn, vann á lokaúrtökumóti Q-school, LET og tóku systurnar því efstu sætin í úrtökumótum helstu kvenmótaraða heims LPGA og LET, sem hefir aldrei fyrr gerst.
Moriya er sem stendur nr. 431 á Rolex-heimslista kvenna.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
