
Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Marita Engzelius, Katie Burnett og Frances Bondad (6. grein af 27)
Í dag verða þær 3 stúlkur kynntar sem urðu í 24. sæti á lokaúrtökumóti LPGA sem fram fór á Daytona Beach í Flórída, dagana 28. nóvember – 2. desember 2012. Þessar 3, sem kynntar eru í dag hljóta takmarkaðan spilarétt á LPGA næsta keppnistímabil. Þær eru:
1. Marita Engzelius
Norska frænka okkar Marita Engzelius er e.t.v. meðal þeirra óheppnustu í lokaúrtökumóti LPGA. Hún var í 9. sæti fyrir lokahringinn og þar með með kortið sitt hársbreidd frá því að vera tryggt en hrundi niður skortöfluna með skori upp á 75 lokahringinn og varð í 24. sæti 1 höggi frá því að tryggja sér fullan þátttökurétt – 1 högg frá fullum keppnisrétti og korti á LPGA er reyndar saga allra þriggja sem kynntar verða hér í kvöld.
Marita fæddist 9. febrúar 1988 og er því 24 ára. Marita byrjaði að spila golf 13 ára og er í Golfklúbbi Osló. Hún var við nám og spilaði í bandaríska háskólagolfinu fyrir University of Tulsa og spilaði í öllum 33 mótum liðsins þau 4 ár sem hún var í skólanum. Hún vann ORU Shootout og átti 4 aðra topp 10 árangra. Marita er í golflandsliði Noregs og hefir átt sæti í því frá árinu 2006. Hún er norskur meistari í höggleik 2007 og 2010 og besti hringur hennar til dagsins í dag er upp á 64 högg. Marita er sem stendur nr. 159 á heimslista áhugamanna.
2. Katie Burnett
Katie Burnett fæddist 16. október 1989 og er því 23 ára. Hún er frá Brunswick í Georgiu ríki og var í háskóla í Suður-Karólínu, þar sem hún spilaði með golfliði skólans í 4 ár. Sjá má árangur Katie í háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR:
Foreldrar hennar er Rod og Lisa Burnett og hún á einn bróður, Ben.
Katie útskrifaðist með gráðu í sálfræði. Þetta er í fyrsta sinn, sem hún tekur þátt í Q-school LPGA.
3. Frances Bondad
Frances Bondad fæddist 21. janúar 1988 í Los Angeles í Bandaríkjunum og er því 24 ára.
Hún er áströlsk, frá Greystanes í New South Wals og meðal áhugamála hennar er að fara á ströndina, versla, dansa og verja tíma með vinunum.
Frances er búin að spila 5 keppnistímabil á LET og vann sitt fyrsta mót í nóvember í fyrra, 2011, þ.e. Sanya Ladies Open í Hainan í Kína.
Frances hafði fyrir sigurinn oft verið nálægt því að sigra áður t.d. varð hún í 2. sæti 2010 á Open de España Femenino. Árið 2008 rétt náði hún að verða meðal topp-100 á peningalista LET, en 2009 varð hún í 39. sæti og 2010 varð hún í 26. sæti.
Golf 1 tók eitt sinn saman grein um uppáhaldshluti Bondad sem sjá má með því að SMELLA HÉR:
Sjá má sveilfu Frances Bondad mð því að SMELLA HÉR:
- mars. 31. 2023 | 16:30 Gary Player þarf að „grátbiðja“ til að fá að spila á Augusta National
- mars. 26. 2023 | 23:24 PGA: Sam Burns sigraði í WGC-Dell holukeppninni
- mars. 23. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kristín Sigurbergsdóttir – 23. mars 2023
- mars. 22. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Peter McEvoy og Davíð Arthur Friðriksson – 22. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore