Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 17. 2012 | 18:30

Nýju stúlkurnar á LPGA 2012 (4. grein af 20) – Valentine Derrey

Franska stúlkan Valentine Derry fær sérstaka grein um sig vegna þess að hún lenti ein í 33. sæti Q-school LPGA í desember s.l. í von um að hljóta aukinn keppnisrétt, en hún var þegar búin að hljóta nokkurn keppnisrétt í gegnum Symetra túrinn, sem hún spilaði á 2011.  Valentine fæddist 13. júní 1987 í París, Frakklandi og er því 24 ára.  Hún byrjaði að spila golf 7 ára.

Valentine Derrey.

Derrey spilaði í bandaríska háskólagolfinu með Texas Christian University (TCU) þar sem hún varð 11 sinnum meðal 10 efstu, þ.á.m. sigraði hún einu sinni. Hún var í 9 ár hluti af franska golflandsliðinu (2001-2009); hún er þrefaldur sigurvegari French Junior Championship (2001, 2004, 2005) og varð í 2. sæti á British Girls Cup 2004 og franskur bikarmeistari 2005.

Í október 2010 gerðist Valentine atvinnumaður í golfi. Hún spilaði fyrst á Symetra Tour, keppnistímabilin 2010 og 2011 og þar vann hún Tate & Lyle Championship í Decatur, Illinois. Hún varð 7. og vann sér inn kortið sitt á LPGA fyrir keppnistímabilið 2012.  Hún keppti líka á LET, 2011.

Meðal áhugamála Valentine er að horfa á kvikmyndir, verja tíma með fjölskyldu og vinum og fara í ræktina. Aðspurð í hvaða sjónvarpsþætti í Bandaríkjunum hún myndi gjarnan fá að leika ef tækifæri byðist þá svaraði hún Greys Atonomy vegna þess að það er uppáhaldsþáttur hennar.

Hér má sjá viðtal við Valentine Derrey í bandaríska golfþættinum Morning Drive, smellið HÉR: