
Nýju stúlkurnar á LPGA 2012 (16. grein af 20) – Karlin Beck
Hér er komið að því að kynna Karlin Beck, en hún varð ásamt þeim Jodi Ewart og Dori Carter í 4. sæti á lokaúrtökumóti Q-school LPGA. Jodi hefir þegar verið kynnt (í gær) og Dori verður kynnt á morgun. Að þeim kynningum lokum er aðeins eftir að kynna þær 3 stúlkur sem röðuðu sér í efstu 3. sætin eftir 5 daga keppni á Champions og Legends golfvöllunum, í Flórída þar sem lokaúrtökumótið fór fram dagana 30. nóvember – 4. desember 2011.
En snúum okkur nú að Karlin.
Karlin Beck fæddist 6. ágúst 1987 í Montgomery, Alabama og er því 24 ára. Hún er dóttir Steve og Kathy Beck og á 1 systur Kinley. Karlin spilaði golf með golfliði Auburn University og útskrifaðist með gráðu í endurskoðun og með frönsku og alþjóðlega viðskiptafræði í undirgrein. Sjá má afrek Karlin í bandaríska háskólagolfinu með því að smella HÉR:
Eftir útskrift 2011 gerðist Karlin atvinnumaður í golfi og komst strax á Futures Tour, keppnistímabilið 2011 og strax í fyrstu tilraun sinni í desember 2011 í Q-school flýgur hún inn á LPGA og er því nýliði í ár.
Karlin byrjaði í golfi 12 ára og segir afa sinn hafa verið þann aðila sem hafði mest áhrif á feril sinn. Meðal áhugamála sinna segir Karlin vera tennis, að horfa á kvikmyndir, hérar, og hún er að eigin sögn fréttafíkill. Ef hún væri ekki atvinnukylfingur myndi hún gjarnan vilja starfa sem endurskoðandi í kvikmyndaiðnaðinum!
- október. 1. 2023 | 16:16 Ryder Cup 2023: Áhangendur streymdu á Marco Simone eftir sigur liðs Evrópu 16,5-11,5
- október. 1. 2023 | 15:40 Ryder Cup 2023: Fleetwood innsiglar sigur liðs Evrópu!!!
- október. 1. 2023 | 15:10 Ryder Cup 2023: Hovland, Rory og Hatton unnu sínar viðureignir – Rahm hélt jöfnu – Vantar bara 1/2 stig núna!!!
- október. 1. 2023 | 12:00 Ryder Cup 2023: Tvímenningsleikir sunnudagsins
- október. 1. 2023 | 08:00 Ryder Cup 2023: Evrópa 10,5 – Bandaríkin 5,5 e. 2. dag
- ágúst. 13. 2023 | 21:00 Íslandsmótið 2023: Logi hlaut Björgvinsskálina!
- ágúst. 13. 2023 | 19:30 Íslandsmótið 2023: Ragnhildur og Logi Íslandsmeistarar!!!
- ágúst. 12. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2023)
- ágúst. 7. 2023 | 23:00 Birgir Björn sigurvegari Einvígisins á Nesinu 2023
- ágúst. 1. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason og Guðmundur Liljar Pálsson – 1. ágúst 2023
- ágúst. 1. 2023 | 08:18 Ryder Cup 2023: Stewart Cink 5. varafyrirliði liðs Bandaríkjanna
- júlí. 31. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Rut Evudóttir – 31. júlí 2023
- júlí. 31. 2023 | 12:00 European Young Masters: Markús Marelsson varð í 2. sæti!!! – Glæsilegur!!!
- júlí. 30. 2023 | 23:59 PGA: Lee Hodges sigurvegari 3M Open
- júlí. 30. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bergsteinn Hjörleifsson – 30. júlí 2023