Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET: Manon de Roey (3/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Næst verða þær tvær kynntar sem deildu 63.-64. sætinu þ.e. voru T-63 en það eru Josefin Odenring og Manon de Roey.   Byrjað verður á de Roey.

Manon de Roey fæddist 12. desember 1991 í Belgíu og er því nýorðin 25 ára.

De Roey byrjaði að spila golf þegar hún var 10 ára og hefir síðan þá verið meðlimur í Rinkven International Golf & Country Club, í Belgíu. Hún nam við TOS Top Sports School í Hasselt, Belgíu og árið 2008 (þá 17 ára) var hún komin í kvennalandslið Berlgíu og tók m.a. þátt í the European Team Championships.

Hún spilaði í bandaríska háskólagolfinum með liði University of New Mexico 2010-2014. Árið 2014 var hún meðal efstu 200 á heimslistanum og tók í 2. skiptið þátt í Dutch Ladies Open.

De Roey hefir margoft unnið mót í Belgíu m.a. :
2007: Belgian Young Talent Trophy
2008: Flanders Trophy
2009: Federal Tour Damme
2011: Classic Omnium of Belgium
2012: Concentra Securitas Omnium
2013: NK Stroke
2014: Stroke NK, NK Matchplay

Í bandaríska háskólagolfinu sigraði hún m.a. á:
2012: Colonel Wallenberg’s Ram Classic
2012: Mountain West Championships

De Roey á ýmis vallarmet m.a. á:

Limburg Golf & Country Club: 66 (-6)
Rinkven Golf & Country Club (Old Course): 67 (-5)

Þann 1. janúar 2015, þ.e. fyrir 2 árum gerðist Manon de Roey atvinnumaður. Hún hlaut kortið sitt á Q-school LET 2014 og besti árangur hennar 1. árið sitt á túrnum 2015 var 12. sætið á  Oca Augas Santas International Ladies Open á Spáni.

Lokaskor de Roey á lokaúrtökumóti LET 2016 var 7 yfir pari, 367 högg (74 74 71 73) og hún deildi 63. sætinu og er því nú með takmarkaðan spilarétt á LET.