Nýju stúlkurnar á LET: Inci Mehmet (53/66)
Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.
Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.
Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar.
Nú erum við að kynna þær sem höfnuðu í 12. sæti og hlutu fullan spilarétt á LET; en það voru 4 stúlkur sem allar léku á 7 undir pari, 353 höggum, hver.
Þetta eru þær Ariane Provot frá Frakklandi (70 74 70 70 69); Inci Mehmet frá Englandi (71 72 73 67 70); Natalia Escuriola Martinez frá Spáni (66 73 68 75 71) og Lauren Horseford frá Englandi.
Ariane Provot hefir þegar verið kynnt og nú verður Inci Mehmet kynnt.
Inci Mehmet fæddist í London 2. október 1996 og er því 20 ára. Hún býr í Richmond í Englandi.
Inci segist hafa byrjað að spila golf 4 ára en farið að keppa 11 ára.
Hún gerðist atvinnumaður í golfi 1. janúar á þessu ári, 2017.
Inci segir uppáhaldskylfing sinn vera Jason Day og uppáhaldslið Chelsea og Miami Heat & Dolphins.
Inci segist hafa áhuga á bílum, tónlist, námi og ræktinni.
Sjá má kynningarmyndskeið með Inci Mehmet með því að SMELLA HÉR:
Nú nýverið birti LET líka kynningu á Inci í greinaflokknum „Meet the rookie“ eða „Kynnist nýliðanum“ og má sjá með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
