26/01/2020. Ladies European Tour. Final Stage Qualifying School. La Manga Club, South Course, Spain. Jan 22-26 2020 Gudrun Bjorgvinsdottir of Iceland, tied 10th, gaining category 08 for the season. Credit: Tristan Jones Nýju stúlkurnar á LET 2020: Guðrún Brá Björgvinsdóttir (1/65) – II
Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.
Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:
Dansað var úr röðinni og hefir íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.
Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu, þær 7 (6), sem urðu T-43, þær 6 sem urðu T-37 og þær 4, sem deildu 33. sætinu; þær 7 stúkur sem deildu 27. sætinu; þær tvær sem urðu T-25; þá sem varð ein í 24. sætinu og þær fjórar sem deildu 20. sætinu.
Næst verða kynntar þær 10 stúlkur sem deildu 10. sætinu þ.e. urðu T-10, en allar spiluðu þær á samtals 3 yfir pari, 364 höggum og tryggðu sér þar með öruggt sæti og fullan spilarétt á sterkustu kvenmótaröð Evrópu, Ladies European Tour (skammst: LET). Ein þessara stúlkna, Guðrún Brá Björgvinsdóttir hefir þegar verið kynnt, en verður kynning hennar birt aftur. Hinar 9 sem náðu þessum glæsilega árangri að verða T-10 voru Charlotte Thomas frá Englandi; Tiia Koivisto frá Finnlandi, Eun Jung Ji frá S-Kóreu, Sophie Hausman og Carolin Kauffmann frá Þýskalandi, Morgane Metraux frá Sviss, Filippa Moork frá Svíþjóð, Pia Babnik frá Slóveníu, en hún var jafnframt yngsti keppandinn í þessu lokaúrtökumóti og síðan hin franska Anne Charlotte Mora.
Búið er að kynna Thomas og Koivisto af þeim sem urðu T-10 á lokaúrtökumóti LET. Í dag verður kynningin á Guðrúnu Brá birt að nýju en hún varð uppreiknað í 17. sætinu. Skorið sem tryggði Guðrúnu Brá fullan keppnisrétt á LET 2020 var samtals 3 yfir pari, 364 högg (73 69 74 73 75).
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er fædd 25. mars 1994 og er því 26 ára. Hún ólst upp í Hafnarfirði, þar sem hún er í Golfklúbbnum Keili. Foreldrar hennar eru Heiðrún Jóhannsdóttir og golfkennarinn landsfrægi og 4-faldur Íslandsmeistari í höggleik, Björgvin Sigurbergsson. Hún á einn bróður Helga Snæ, sem líka er frábær kylfingur. Óhætt er að segja að Guðrún Brá sé úr þekktustu golffjölskyldu Íslands, þar sem fjölskyldumeðlimir hampa jafnan verðlaunum í mótum.
Guðrún Brá átti afar farsælan golfáhugamannsferil, sem barn og unglingur og má í því sambandi rifja upp viðtal, sem Golf 1 tók við Guðrúnu Brá fyrir 8 árum (2012) þegar hún var búin að ná því að verða Íslandsmeistari á unglingamótaröðinni í sínum aldursflokkum 6 ár í röð!!! – Sjá með því að SMELLA HÉR:
Á árunum 2014-2017 lék Guðrún Brá í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Bulldogs, þ.e. golfliði Fresno State University í Kaliforníu.
Eftir úrskrift úr Fresno lék Guðrún Brá mestmegnis á LET Access mótaröðinni, en einnig „Mótaröð þeirra bestu“ hér heima á Íslandi.
Í LET Access móti í Finnlandi 7.-9. júní 2018, Viaplay Ladies Finnish Open náði Guðrún Brá því að fara holu í höggi í fyrsta sinn og gerði það með stæl þ.e. í móti! Ásinn kom á par-3 15. holu Messilä Golf í Finnlandi, sem er 185 m.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir með ás!!!
Seinna árið 2018 varð hún í fyrsta sinn Íslandsmeistari í höggleik á Vestmannaeyjavelli, en í karlaflokki varð Íslandsmeistari, frændi hennar Axel Bóasson, sem spilað hefir á Nordic Golf League mótaröðinni og Áskorendamótaröð Evrópu (ens. Challenge Tour).

Axel og Guðrún Brá Íslandsmeistarar í höggleik 2018
Guðrún Brá er ekki bara góð í að spila golf – hún dúxaði einnig á golfregluprófi nýliða á LET á sl. ári, 2019 – Sjá með því að SMELLA HÉR:
Þann 11. ágúst 2019 varði Guðrún Brá Íslandsmeistaratitil sinn í höggleik, nú á Grafarholtsvelli og var hún sú eina af keppendunum, sem lék á heildarskori undir pari, þ.e. á samtals 3 undir pari.

Íslandsmeistarar í höggleik 2019 – Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Guðmundur Ágúst Kristjánsson
Guðrún Brá á einnig mörg vallarmet, en sem nýlegt dæmi um það má nefna að 8. september á sl. ári (2019) setti Guðrún Brá nýtt vallarmet af rauðum á Hólmsvelli í Leiru, sem hún lék á 68 glæsihöggum þegar hún sigraði í Ljósanæturmóti Hótel Keflavíkur & Diamond Suites.
Og nú í ár, eftir frækilega frammistöðu í lokaúrtökumóti LET, dagana 22.-26. janúar 2020, er Guðrún Brá komin með keppnisrétt á bestu kvenmótaröð Evrópu, Ladies European Tour (LET) keppnistímabilið 2020 og spennandi tímar framundan hjá henni!

26/01/2020. Ladies European Tour. Final Stage Qualifying School. La Manga Club, South Course, Spain. Jan 22-26 2020 Gudrun Bjorgvinsdottir of Iceland, tied 10th, gaining category 08 for the season. Credit: Tristan Jones
Golf 1 óskar Guðrúnu Brá hjartanlega til hamingju með árangurinn og óskar henni velgengni í framhaldinu ….
Í aðalmyndaglugga: Guðrún Brá á leið með að verða Íslandsmeistari í höggleik 2. árið í röð, þ.e. 2019 í Grafarholtinu. Mynd: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
