Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2020 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Georgia Coughlin (4/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt.

Næst verða þær 4 kynntar sem urðu T-61, þ.e. deildu 61. sætinu en það eru: sænski kylfingurinn Emma Westin, Anaelle Carnet frá Frakklandi, Vani Kapoor frá Indlandi og enski kylfingurinn Georgia Coughlin. Þær léku allar á 16 yfir pari, 377 höggum. Byrjað verður að kynna þá sem varð uppreiknað í 64. sæti en það er Georgia Coughlin.

Georgia Coughlin fæddist í Blackpool 26. apríl 1995 og er því 24 ára.

Hún er frá Lytham St. Annes í Lancashire, Englandi.

Hún byrjaði að spila golf fremur seint af atvinnumanni að vera, þ.e. 16 ára í Riyad, Sádí Arabíu, þar sem hún bjó frá 3 ára aldri til 17 ára aldurs.

Þegar hún var 18 ára fluttist hún til Englands og var í 2 ár í Lee Westwood Golf College. Eftir 6 ár í áhugamennsku gerðist Coughlin atvinnumaður 2018 og hefir síðan þá spilað á LET Access.

Sjá má nýlegt, skemmtilegt viðtal við Coughlin með því að SMELLA HÉR: