Nýju stúlkurnar á LET 2020: Elía Folch (23/65)
Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.
Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:
Dansað var úr röðinni og íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.
Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu og þær 7 sem deildu 50. sætinu.
Næst verða kynntar þær 6 af 7 stúlkum sem urðu jafnar í 43. sæti þ.e. T-43 á samtals 10 yfir pari, 371 höggum, en þetta eru þær: Rachel Drummond (hefir þegar verið kynnt); Georgia Iziemgbe Oboh frá Nígeríu; Elía Folch frá Spáni; Ha rang Lee frá Spáni; Valentine Derrey frá Frakklandi; Madelene Stavnar frá Noregi og enski áhugamaðurinn Georgina Blackman.
Allar nema Folch og Oboh hafa þegar verið kynntar af þeim sem urðu T-43 og í dag er það Elía Foch, sem var uppreiknað í 45. sætinu á lokaúrtökumótinu, sem verður kynnt. Hún spilar ekki á Evrópumótaröð kvenna á næsta keppnistímabili, en verður líklegast að spila í nokkrum mótum á LET Access.
Elía Folch fæddist 21. janúar 1991 líkt og annar kunnur golfkappi, þar sem er golfgoðsögnin sjálf Jack Nicklaus.
Elía fæddist í Barcelona og er nýorðin 29 ára.
Elía býr í Terrassa á Spáni og segir pabba sinn hafa haft mest áhrif á golfleik sinn.
Uppáhaldsgolfvöllur Elía er Flint Hills í Kansas, Bandaríkjunum.
Elía gerðist atvinnumaður í golfi 28. desember 2015.
Hún reyndi að komast á LPGA í fyrra þ.e. lokaúrtökumót LPGA 2016 fyrir 2017, en hlaut aðeins takmarkaðan spilarétt á LPGA 2017. Hún reyndi aftur fyrir sér á úrtökumóti fyrir LPGA 2017 og spilaði á mótaröð þeirra bestu 2018.
Þar gekk ekki sem skyldi og reyndi Folch fyrir sér í Evrópu 2019, en hafði eins og áður sagði, ekki árangur sem erfiði, í þetta sinn.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
