Nýju stúlkurnar á LET 2020: Anaelle Carnet (6/65)
Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.
Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:
Dansað var úr röðinni og íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.
Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt.
Næst verða þær 4 kynntar sem urðu T-61, þ.e. deildu 61. sætinu en það eru: sænski kylfingurinn Emma Westin, Anaelle Carnet frá Frakklandi, Vani Kapoor frá Indlandi og enski kylfingurinn Georgia Coughlin.
Þær léku allar á 16 yfir pari, 377 höggum. Coughlin og Kapoor hafa þegar verið kynntar þannig í dag er það Anaelle Carnet, sem verður kynnt en hún varð uppreiknað í 62. sæti.
Anaelle Carnet fæddist 21. maí 1994 í Lons de Saunier í Frakklandi og er því 25 ára.
Í dag býr Carnet í Voiteur, í Frakklandi.
Hún gerðist atvinnumaður í golfi 1. janúar 2015.
Áhugamál utan golfsins er að hlusta á tónlist, hjóla og matreiðsla.
Fylgjast má með Carnet á Instagram á @ANAELLE_CARNET.
Því miður komst Carnet ekki á Evrópumótaröð kvenna að þessu sinni, fær bara að spila á LET Access keppnistímabilið 2020, eins og hún hefir gert undanfarin 3 keppnistímabil. Árið 2014 spilaði hún m.a.s. á LET Access sem áhugamaður í 1 móti.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
