
Nýju stúlkurnar á LET 2018: Silvía Bañon (19/25)
Golf 1 mun nú kynna þær stúlkur sem hlutu fullan keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna, en lokaúrtökumótið fór fram í Marokkó í 16.-20. desember 2017.
Leiknir voru 5 hringir og voru stúlkurnar 60 að þessu sinni sem kepptu um kortið sitt, þ.á.m. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK.
Það voru 25 efstu stúlkurnar sem komust á LET og baráttan í ár var hörð.
T.a.m. voru 6 stúlkur jafnar í 24. sætinu á samtals 4 undir pari, 356 höggum og varð að koma til bráðabana milli þeirra því aðeins tvö sæti voru í boði þ.e. það 24. og 25.
Það voru tvær norskar stúlkur sem sigruðu í bráðabananum þ.e. þær Celine Borge og Madeleine Stavnar (báðar með örn á par-5 18. holuna þar sem úrslitin réðust).
Þær 4, sem sátu eftir með sárt ennið voru hin spænska Maria Palacios Siegenthaler; Julie Aime frá Frakklandi; Kiran Matharu frá Englandi og Tiia Koivisto frá Finnlandi.
Þessar tvær heppnu stúlkur, sem unnu í bráðabanaum um 24. og 25. sætin hafa nú verið kynntar og eins stúlkurnar 5 sem urðu í 19.sæti en það eru Ariane Provot frá Frakklandi; Katja Pogacar frá Slóveníu; Ainil Bakar frá Bandaríkjunum; Sideri Vanova frá Tékklandi og Lucrezia Colombotto Rosso frá Ítalíu. Eins hafa þrjár stúlkur sem urðu í 16. sæti á samtals 6 undir pari, 354 höggum verið kynntar: Elia Folch frá Spáni; Cloe Frankish frá Englandi og Sanna Nuutinen frá Finnandi. Næst voru þær sem deildu 14. sætinu kynntar: Mireia Prat og Piti Martinez Bernal, en báðar léku þær á samtals 7 undir pari, 353 höggum. Fimm stúlkur deildu 9. sætinu, en það eru: Julía Engström og Cajsa Persson frá Svíþjóð; Vikki Laing frá Skotlandi; Laura Sedda frá Ítalíu og Elína Nummenpää frá Finnlandi. Þær léku allar á samtals 8 undir pari, 352 höggum.
Golf 1 er byrjað að kynna þær 3 sem deildu 6. sætinu, en það eru: Jeanette Marita Engzelius frá Noregi; Nína Pegova frá Rússlandi og Silvia Bañon frá Spáni, en þær léku allar á 9 undir pari, 351 höggi.
Nina Pegova hefir þegar verið kynnt og í dag er það Silvia Bañon frá Spáni.
Silvia Bañon fæddist í Alicante, á Spáni 21. október 1992 og er því 25 ára.
Silvía er 1,76 á hæð.
Hún segir uppáhaldsgolfvöll sinn á Spáni vera Real Golf de Pedreña; uppáhaldsfótboltalið Real Madrid og uppáhaldskylfing sinn vera Severiano Ballesteros.
Silvia gerðist atvinnumaður í golfi 7. september 2016.
Hún segir foreldra sína og þjálfara hafa haft mest áhrif á golfið sitt.
Silvia hefir tók þátt í 1. LET móti sínu 2014 en það var Tenerife Open de España Femenino og þar náði hún ekki niðurskurði. Síðan lék hún í 2. LET móti sínu 2016 þ.e. Andalucia Costa Del sol Open de España Femenino, en þar varð hún T-78.
Síðan tók Silvía þátt í Lalla Aicha lokaúrtökumótinu 2016 og varð T-34 þ.e. hlaut takmarkaðan keppnisrétt í 1. tilraun sinni á lokaúrtökumóíu sínu og spilaði aðeins í 3 mótum á LET í fyrra, 2017, þar sem besti árangur hennar var T-50 árangur á Lalla Meryem Cup.
Helstu áhugamál Silvíu utan golfsins eru lestur góðra bóka, kærastinn og nýjasta tíska.
Nú eftir glæsilegan árangur í lokaúrtökumótinu 2017 er Silvía hins vegar komin með fullan spilarétt og kortið sitt á LET, keppnistímabilið 2018!!!
- febrúar. 23. 2021 | 22:00 Tiger lenti í bílslysi í Genesis GV80
- febrúar. 2. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jenny Sigurðardóttir – 2. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 18:00 PGA: Reed sigraði á Farmers Insurance Open
- febrúar. 1. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Kristín Þorvarðardóttir – 1. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 08:00 Evróputúrinn: Casey sigraði á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 31. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Justin Timberlake – 31. janúar 2021
- janúar. 30. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (5/2021)
- janúar. 30. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Payne Stewart ——- 30. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Snær Loftsson – 29. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 14:45 Evróputúrinn: Detry leiðir í hálfleik á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 28. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Sigurel Arnfinnsson – 28. janúar 2021
- janúar. 28. 2021 | 12:00 Greg Norman selur „húsið“ sitt í Flórída
- janúar. 27. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Karine Icher —— 26. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 07:30 PGA Championship fer fram í Southern Hills 2022 í stað Trump Bedminster