
Nýju stúlkurnar á LET 2018: Nína Pegova (18/25)
Golf 1 mun nú kynna þær stúlkur sem hlutu fullan keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna, en lokaúrtökumótið fór fram í Marokkó í 16.-20. desember 2017.
Leiknir voru 5 hringir og voru stúlkurnar 60 að þessu sinni sem kepptu um kortið sitt, þ.á.m. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK.
Það voru 25 efstu stúlkurnar sem komust á LET og baráttan í ár var hörð.
T.a.m. voru 6 stúlkur jafnar í 24. sætinu á samtals 4 undir pari, 356 höggum og varð að koma til bráðabana milli þeirra því aðeins tvö sæti voru í boði þ.e. það 24. og 25.
Það voru tvær norskar stúlkur sem sigruðu í bráðabananum þ.e. þær Celine Borge og Madeleine Stavnar (báðar með örn á par-5 18. holuna þar sem úrslitin réðust).
Þær 4, sem sátu eftir með sárt ennið voru hin spænska Maria Palacios Siegenthaler; Julie Aime frá Frakklandi; Kiran Matharu frá Englandi og Tiia Koivisto frá Finnlandi.
Þessar tvær heppnu stúlkur, sem unnu í bráðabanaum um 24. og 25. sætin hafa nú verið kynntar og eins stúlkurnar 5 sem urðu í 19.sæti en það eru Ariane Provot frá Frakklandi; Katja Pogacar frá Slóveníu; Ainil Bakar frá Bandaríkjunum; Sideri Vanova frá Tékklandi og Lucrezia Colombotto Rosso frá Ítalíu. Eins hafa þrjár stúlkur sem urðu í 16. sæti á samtals 6 undir pari, 354 höggum verið kynntar: Elia Folch frá Spáni; Cloe Frankish frá Englandi og Sanna Nuutinen frá Finnandi. Næst voru þær sem deildu 14. sætinu kynntar: Mireia Prat og Piti Martinez Bernal, en báðar léku þær á samtals 7 undir pari, 353 höggum. Fimm stúlkur deildu 9. sætinu, en það eru: Julía Engström og Cajsa Persson frá Svíþjóð; Vikki Laing frá Skotlandi; Laura Sedda frá Ítalíu og Elína Nummenpää frá Finnlandi. Þær léku allar á samtals 8 undir pari, 352 höggum.
Í dag verður byrjað að kynna þær 3 sem deildu 6. sætinu, en það eru: Jeanette Marita Engzelius frá Noregi; Nína Pegova frá Rússlandi og Silvia Banon frá Spáni, en þær léku allar á 9 undir pari, 351 höggi.
Byrjað verður á að kynna Nínu Pegovu.
Nína Pegova fæddist 5. janúar 1994 í Moskvu í Sovétríkjunum og er því nýorðin 24 ára.
Nina byrjaði að spila golf 13 ára. Hún nam við rússneska háskólann í hagfræði (ens.: Russian University of Economics)
Þegar hún er ekki á golfvellinum finnst henni gaman að lestri góðra bóka og stærðfræði.
Nína Pegova hefir undanfarin 4 ár spilað á LET Access: árið 2014 spilaði hún í 3 mótum og lægsti hringur hennar var á Ingaro Ladies Open þar sem gestgjafi var Elin Emanuelsson, en þar var hún á 1 yfir pari, 70 höggum og lauk keppni T-30.
Pegova spilaði síðan í 5 mótum 2015 og var besti árangur hennar á CitizenGuard LETAS Trophy sem fram fór í Belgíu þar sem skor hennar var 75, 75, 75 og hún varð T-41.
Pegova gerðist atvinnumaður í golfi 14. janúar 2016.
Það ár (2016) tók hún þátt í lokaúrtökumóti LET en hlaut aðeins takmarkaðan spilarétt á LET keppnistímabilið 2017 – og hélt því áfram að spila á LET Access eins og 3 árin á undan … en nú eftir Lalla Aicha Tour School sem fram fór 2017 er hún komin með kortið sitt og full spilaréttindi á bestu kvenmótaröð í Evrópu, LET, keppnistímabilið 2018.
- febrúar. 23. 2021 | 22:00 Tiger lenti í bílslysi í Genesis GV80
- febrúar. 2. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jenny Sigurðardóttir – 2. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 18:00 PGA: Reed sigraði á Farmers Insurance Open
- febrúar. 1. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Kristín Þorvarðardóttir – 1. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 08:00 Evróputúrinn: Casey sigraði á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 31. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Justin Timberlake – 31. janúar 2021
- janúar. 30. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (5/2021)
- janúar. 30. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Payne Stewart ——- 30. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Snær Loftsson – 29. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 14:45 Evróputúrinn: Detry leiðir í hálfleik á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 28. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Sigurel Arnfinnsson – 28. janúar 2021
- janúar. 28. 2021 | 12:00 Greg Norman selur „húsið“ sitt í Flórída
- janúar. 27. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Karine Icher —— 26. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 07:30 PGA Championship fer fram í Southern Hills 2022 í stað Trump Bedminster