
Nýju stúlkurnar á LET 2018: Sideri Vanova (4/25)
Golf 1 mun nú kynna þær stúlkur sem hlutu fullan keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna, en lokaúrtökumótið fór fram í Marokkó í 16.-20. desember 2017.
Leiknir voru 5 hringir og voru stúlkurnar 60 að þessu sinni sem kepptu um kortið sitt, þ.á.m. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK.
Það voru 25 efstu stúlkurnar sem komust á LET og baráttan í ár var hörð.
T.a.m. voru 6 stúlkur jafnar í 24. sætinu á samtals 4 undir pari, 356 höggum og varð að koma til bráðabana milli þeirra því aðeins tvö sæti voru í boði þ.e. það 24. og 25.
Það voru tvær norskar stúlkur sem sigruðu í bráðabananum þ.e. þær Celine Borge og Madeleine Stavnar (báðar með örn á par-5 18. holuna þar sem úrslitin réðust).
Þær 4, sem sátu eftir með sárt ennið voru hin spænska Maria Palacios Siegenthaler; Julie Aime frá Frakklandi; Kiran Matharu frá Englandi og Tiia Koivisto frá Finnlandi.
Þessar tvær heppnu stúlkur, sem unnu í bráðabanaum um 24. og 25. sætin hafa nú verið kynntar og nú erum við að kynna stúlkurnar 5 sem urðu í 19.sæti en það eru Ariane Provot frá Frakklandi; Katja Pogacar frá Slóveníu; Ainil Bakar frá Bandaríkjunum; Sideri Vanova frá Tékklandi og Lucezia Colombotto Rosso frá Ítalíu.
Allar léku þessar stúlkur á samtals 5 undir pari, 355 höggum.
Ariane Provot hefir þegar verið kynnt og í dag er það Sideri Vanova frá Tékklandi.
Sideri Vanova er tékknesk; fæddist 18. maí 1989 og er því 28 ára.
Frá árinu 2012 hefir Vanova spilað í 2. deild kvennagolfsins í Evrópu þ.e. á LET Access.
Hún tók þátt á lokaúrtökumóti LET í fyrra, 2016, en hlaut þá aðeins takmarkaðan spilarétt á LET, 2017 keppnistímabilið.
Hún reyndi aftur fyrir sér á lokaúrtökumótinu 2017 og er nú komin með kortið sitt á LET og fullan spilarétt 2018!
Helstu afrek hennar á golfsviðinu eru eftirfarandi:
Frá 2012, meðlimur PGAC
2013 – Tók þátt í Q school LET
2013 – 2. sæti – Academic Championship Rebubliky
2013- 1. sæti – Club Championship
2013 – 6. sæti – Hant Trophy Skalica (blandað – karlar og konur)
2011- 2. sæti Championship í golfhermum
2011- 1 extraliga
2011- 4. sæti – Europien Trophy
2011- 2. sæti Championship á golfhermum
2010- 2.sæti í Czech Extraliga
2010- 2. sæti á tékkneska Golf Tour Amater
2009- 1. sæti Team Czech Extraliga
2009- 3. sæti Europien Club Trophy
2009- 1. sæti á Memorial Hanus Goldscheider
2008- 3. sæti í röðun tékkneska Golf Tour Amater
2007- 2. sæti í sæti Tékklandi Golf Tour Amater
2007- 1. sæti á Memorial Hanus Goldscheider
2006,2007,2009 – Victory Lady Abrahams Trophy
- febrúar. 23. 2021 | 22:00 Tiger lenti í bílslysi í Genesis GV80
- febrúar. 1. 2021 | 08:00 Evróputúrinn: Casey sigraði á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 31. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Justin Timberlake – 31. janúar 2021
- janúar. 30. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (5/2021)
- janúar. 30. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Payne Stewart ——- 30. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Snær Loftsson – 29. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 14:45 Evróputúrinn: Detry leiðir í hálfleik á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 28. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Sigurel Arnfinnsson – 28. janúar 2021
- janúar. 28. 2021 | 12:00 Greg Norman selur „húsið“ sitt í Flórída
- janúar. 27. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Karine Icher —— 26. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 07:30 PGA Championship fer fram í Southern Hills 2022 í stað Trump Bedminster
- janúar. 26. 2021 | 06:00 Þjálfarinn Claude Harmon III segir aðskilnaðinn við fv. nemanda sinn Brooks Koepka „hrikalegan“
- janúar. 25. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Heimir Hjartarson, Svandís Thorvalds og Brynja Sigurðardóttir – 25. janúar 2020
- janúar. 25. 2021 | 05:00 Hvað var í sigurpoka Kim?