Nýju stúlkurnar á LET 2018: Ainil Bakar (7/25)
Golf 1 mun nú kynna þær stúlkur sem hlutu fullan keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna, en lokaúrtökumótið fór fram í Marokkó í 16.-20. desember 2017.
Leiknir voru 5 hringir og voru stúlkurnar 60 að þessu sinni sem kepptu um kortið sitt, þ.á.m. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK.
Það voru 25 efstu stúlkurnar sem komust á LET og baráttan í ár var hörð.
T.a.m. voru 6 stúlkur jafnar í 24. sætinu á samtals 4 undir pari, 356 höggum og varð að koma til bráðabana milli þeirra því aðeins tvö sæti voru í boði þ.e. það 24. og 25.
Það voru tvær norskar stúlkur sem sigruðu í bráðabananum þ.e. þær Celine Borge og Madeleine Stavnar (báðar með örn á par-5 18. holuna þar sem úrslitin réðust).
Þær 4, sem sátu eftir með sárt ennið voru hin spænska Maria Palacios Siegenthaler; Julie Aime frá Frakklandi; Kiran Matharu frá Englandi og Tiia Koivisto frá Finnlandi.
Þessar tvær heppnu stúlkur, sem unnu í bráðabanaum um 24. og 25. sætin hafa nú verið kynntar og nú erum við að kynna stúlkurnar 5 sem urðu í 19.sæti en það eru Ariane Provot frá Frakklandi; Katja Pogacar frá Slóveníu; Ainil Bakar frá Bandaríkjunum; Sideri Vanova frá Tékklandi og Lucrezia Colombotto Rosso frá Ítalíu, en af þeim á aðeins eftir að kynna Ainil Bakar, sem verður kynnt í dag.
Allar léku þessar stúlkur á samtals 5 undir pari, 355 höggum.
Ainil Bakar fæddist 2. nóvember 1989 í bænum Klang í Malasíu og er því 28 ára.
Bakar býr í Sungai Buoh, í Malasíu. Ainil segir að bróðir sinn hafi haft mest áhrif á sig í golfinu.
Ainil gerðist atvinnumaður í golfi 1. október 2010.
Hún spilaði í 1 LET móti 2011 sem var samstarfsverkefni við Asíutúrinn; Hero Women´s Indian Open og varð í 12. sæti.
Árið 2012 lék hún í 2 mótum á LET aftur í samstarfi við Asíutúrinn og varð nú í 51. sæti á Hero Women´s Indian Open, sem var annað þessara tveggja móta; hitt var China Suzhou Taihu Open, þar sem hún varð í 39. sæti.
Árið 2013 lék hún aftur í síðarnefnda mótinu og varð í 55. sæti en komst ekki gegnum niðurskurð á Sanya Ladies Open.
Árið eftir 2014 var nýliðaár Ainil á LET en henni gekk ekki vel og 2015 spilaði hún aðeins í 2 mótum á LET, sem aftur voru samstarfsverkefni við Asíutúrinn þ.e. Sanya Ladies Open, þar sem hún varð í 14. sæti og Hero Women´s Indian Open, þar sem hún náði aðeins 84. sætinu.
Hún fór í Q-school í árslok 2015 og landaði þar 2. sætinu og var komin með full spilaréttindi á LET 2016. Aftur gekk ekki nógu vel 2016, besti árangurinn T-34 á Ladies Qatar Open. Hins vegar náði hún besta árangri sínum í golfinu til þessa, sigri á LET Access þ.e. á EVLI Ladies Finish Open.
En þar sem árangurinn var ekki nógu góður á LET varð Ainil að fara aftur í Q-school, en náði aðeins T-47 árangri og var því einungis með takmörkuð spilaréttindi 2017.
Nú hins vegar eftir Q-school 2017 er Ainil aftur komin með kortið sitt og full spilaréttindi á LET 2018.
Uppáhaldskylfingar Bakar eru Lorena Ochoa og Tiger Woods.
Bakar er í 630. sæti á Rolex-heimslista kvenkylfinga.
Áhugamál Ainil fyrir utan golfið eru að ferðast, lesa bækur, hlusta á tónlist og badminton.
Twitter reikningur Ainil er: @AINILJOHANI
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
