Nýju stúlkurnar á LET 2017: Yan Liu (40/66)
Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.
Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.
Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar.
Nú erum við að byrja að kynna þær heppnu, sem höfnuðu í 21. sæti og hlutu fullan spilarétt á LET; en það voru 4 stúlkur sem allar léku á 3 undir pari, 357 höggum, hver.
Þetta eru þær Neha Tripathi frá Indlandi (72 69 69 76 75); Luna Sobron frá Spáni (73 74 69 68 73); Elia Folch frá Spáni (75 71 72 70 69) og Yan Liu frá Kína (69 73 70 69 76).
Neha Tripathi frá Indlandi hefir þegar verið kynnt og í dag er það Yan Liu frá Kína.
Yan Liu fæddist 27. febrúar 1998 og því 19 ára. Liu er nokkuð sérstök þar sem hún byrjaði að spila golf fremur seint eða 15 ára, árið 2013.
Hún hefir hins vegar frá upphafi verið hjá besta golfkennaranum í heimalandi sínu, sem er David Norquay hjá Leadbetter Golf Academy í Shenzhen, í Kína.
Árið 2015 vakti Liu athygli í Kína þegar hún var á 61 höggi á lokahring China National Junior Championship, sem hún sigraði á. Hún varð nr. 1 áhugamaður í Kína.
Þremur árum eftir að hún tók fyrst upp kylfu (2016) var hún farin að spila í fyrsta risamóti sínu, sem var US Women´s Open. Þær 36 holur sem hún spilaði í mótinu sagði Liu hafa farið í reynslubankann.
Hún sigraði asíska lokaúrtökumót LET, sem fram fór 23.-26. nóvember 2016.

Hin unga Liu, sem í raun hefir aðeins spilað golf í 4 ár er sem stendur nr. 523 á Rolex-heimslista kvenna.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
