Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 22. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Amber Ratcliffe (22/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Í gær var byrjað að kynna þær sem höfnuðu í 42. sætinu; allar á samtals 2 yfir pari, 362 höggum, hver.

Þetta er þær: Sharmila Nicollet frá Indlandi, sem þegar hefir verið kynnt og Celine Borge frá Noregi; Anäis Maggetti frá Sviss; Emilie Alonso frá Frakklandi og Amber Ratcliffe frá Englandi.

Í dag verður Amber Ratcliffe kynnt.

Amber Ratclffe  fæddist 18. október 1995 og er því 21 árs. Heima á Englandi er klúbbur Amber Royal Cromer golfklúbburinn og hún er með +3 í forgjöf.

Helstu afrek Amber eru eftirfarandi:

2009 – Hluti af EWGA Super Birdies Midlands liðinu. Þetta ár aðeins 13 ára varð Amber enskur skólameistari í golfi (ens.: English School Champion).

2010 – Amber var þetta árið, 14 ára fulltrúi Englendinga í European Young Masters Team. Amber varði titil sinn frá árinu áður í English School Champions og varð þar að auki meistari í East Regional Girls and Ladies Champion.

2011 – Amber var þetta árið, 15 ára, hluti af the Select Midlands Squad. Auk þess var hún fulltrúi liðs Breta&Íra í the Junior Vagliano. Eins var hún í liði Englands í the European Young Masters. Þetta ár, 2011, varð Amber í 3. sæti í Scottish U.16 Championships. Hún varð Hacienda del Alamo Girls Champion. Eins varð hún County Champion. Fairhaven Trophy Champion. í 2. sæti í the North of England U.16 Championships í 2. sæti í the Regional Girls Championships og síðan Regional Ladies Champion.

2012 – Amber var þetta árið, 16 ára í EWGA Performance Squad. Hún var fulltrúi Englands í the Girl’s and Ladies Home International Matches. Hún varði titil sinn sem County Champion Amber varð auk þess East Region Ladies Champion og í 7. sæti í breska meisstaramótinu í höggleik ( ens. British Stroke Play Championships).

2013 – Þetta árið 17-18 ára var Amber hluti af the England Golf Performance Girls Squad. Hún var í liði Englands í the French Lady Junior U21 Championships, í European Girls’ Team Championships og í the Ladies Home International Team. Amber var í liði Breta&Íra í the Vagliano Trophy Europe og í the Junior Solheim Cup. Eins var Amber komin á LET Access.

Frá árinu 2014, þ.e. 18-19 ára hefir Amber verið í kvennalandsliði Englands í golfi og er komin á LET.

Sjá má hvað er í uppáhaldi hjá Amber með því að SMELLA HÉR:

Fræðast má nánar um Amber á heimasíðu hennar með því að SMELLA HÉR: