Nýju stúlkurnar á LET 2017: Nina Muehl (28/66)
Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.
Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.
Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.
Nú erum við að kynna þær óheppnu, sem höfnuðu í 34. sætinu og voru við það að hljóta fullan spilarétt á LET, en leika því miður allar á LET Access og hafa aðeins takmarkaðan spilarétt; þær voru allar á samtals sléttu pari, 360 höggum, hver.
Þetta eru þær: Elina Nummenpaa frá Finnlandi (68 71 72 74, 75) spænski kylfingurinn Silvia Banon (70 75 71 69 75), franski kylfingurinn Ines Lesucdier (69 76 70 72 73) og Charlotte Thompson (79 67 69 72 73) og Meghan Maclaren frá Englandi (73 67 73 75 72) frá Englandis; Angella Then frá Bandaríkjunum (75 73 71 69 72) og Nina Muehl ( 72 71 72 69 76)
Elina Nummenpaa frá Finnlandi hefir þegar verið kynnt og í dag er það Nína Muehl frá Austurríki.
Nina Muehl fæddist 17. janúar 1987 í Vín, Austurríki og er því 30 ára. Hún er dóttir Franz og Manuelu Muehl. Nína átti glæsilegan áhugamannsferil í heimalandi sínu, Austurríki og hefir verið í golflandsliði Austurríkis frá árinu 2001, eða frá því hún var 14 ára.
Meðal hápunkta áhugamannsferilsins er að hún varð austurrískur meistari í holukeppni 2008 og varð í 2. sæti í sömu keppni 2007. Hún varð og í 13. sæti í Scottish Ladies Amateur.
Nína var í 4 ár í East Tennessee State University, sama skóla og Guðmundur Ágúst „okkar“ Kristjánsson, þar sem hún spilaði í bandaríska háskólagolfinu, með golfliði skólans og lagði stund á viðskiptafræði. Í bandaríska háskólagolfinu vann Nína til ýmissa afreka sem sjá má með því að SMELLA HÉR: Hún útskrifaðist 2011.
Árið 2013 tók Nina Muehl fyrst þátt í lokaúrtökumóti fyrir LET og hlaut þá fullan keppnisrétt á LET keppnistímabilið 2014 og síðan endurtók hún leikinn 2014 og fékk fullan keppnisrétt á LET 2015.
Í fyrra gekk ekki eins vel og lék hún á LET Access og það er því miður einnig hlutskipti hennar í ár, keppnistímabilið 2017.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
