Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: María Beautell (10/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Það voru 7 stúlkur sem höfnuði í 51. sæti allar á samtals 4 yfir pari, 364 höggum, en þetta eru þær: María Beautell; Marie Fourquier, Julie Maisongrosse, Elizabeth Mallett; Jessica Bradley, Francesca Cuturi og Sideri Vanova.

Byrjað verður á því að kynna Maríu Beautell í dag.

María Beautell fæddist í St. Cruz de Tenerife 13. mars 1981 og er því 35 ára. Foreldrar hennar eru Carlos Beautell og Rosa Maria Largo frá Tenerife á Spáni. Sem áhugamaður varð María spænskur meistari í golfi 1998 og átti sæti í spænska kvennalandsliðinu í golfi. Hún tók sem áhugamaður m.a. þátt í British Girls Championship.

Á árunum 1999-2002 var María í sama háskóla í Bandaríkjunum og Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir og spilaði með golfliði Wake Forest.

María gerðist atvinnumaður í golfi 1. apríl 2004 (alveg satt 🙂 Hún komst strax á Evrópumótaröð kvenna og spilaði á henni 2005-2008 en síðastnefnda árið datt hún út og hlaut ekki kortið sitt að nýju vegna slaks gengis 2008. Hún var í lægð 2009 og 2010, en 2010 spilaði hún á 1 móti á LEt og síðan 2 árið 2011. Hún endurnýjaði síðan skorkort sitt með því að deila 9. sætinu í Q-school á La Manga s.s. fyrr greinir.

Áhugamál Maríu eru ljósmyndun, náttúran, að fara á ströndina og hlusta á góða tónlist. Hún hefir látið hafa eftir sér að ef hún væri ekki atvinnukylfingur myndi hún vilja vinna sem ljósmyndari fyrir National Geographic Magazine. María býr í Santa Cruz de Tenerife og á systur sem líka spilar á LET, Söru Beautell.