Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Josefin Odenring (4/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Næst verða þær tvær kynntar sem deildu 63.-64. sætinu þ.e. voru T-63 en það eru Josefin Odenring og Manon de Roey. De Roey var kynnt í gær og í dag verður Josefin Odenring kynnt.

1-a-josefin

Josefin Odenring fæddist í Svíþjóð 1992 og er því 24 ára.

Lokaskor Josefin Odenring var 7 yfir pari, 367 högg (75 71 70 74) og nú er hún komin með takmarkaðan spilarétt á LET.

Fræðast má meira um Josefin með því að fara á facebook síðu hennar SMELLA HÉR eða fara á heimasíðu hennar með því að SMELLA HÉR: 

Josefin Odenring

Josefin Odenring