Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2017 | 17:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Astrid Vayson de Pradenne (8/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Næst verða kynntar þær fjórar sem deildu 58. sætinu en það eru: Hana Wakimoto, Astrid Vayson de Pradenne, Jenny Lee og Lejan Lewthwaite.

Þær allrar léku á 5 yfir pari, 365 höggum.

Lejan Lewthwaite og Jenny Lee hafa nú þegar verið kynntar og í dag er það Astrid Vayson de Pradenne.

Astrid Vayson de Pradenne fæddist í Avignon, Frakklandi 25. október 1985 og er því 31 árs.

Astrid býr í Chateauneuf-Du-Pape í Frakklandi.

Uppáhaldsgolfvöllur hennar er Dinard í Frakklandi.

Það sem Astrid hefir áhuga á utan golfs er sjúkraþjálfun og köfun.

Astrid gerðist atvinnumaður í golfi 18. nóvember 2014 og er sem stendur nr. 607 á Rolex-heimslista kvenna.

Á næsta keppnistímabili verður Astrid með takmarkaðan spilarétt á LET, en hún hefir á undanförnum árum spilað á LET Access þ.e. 2. deildinni.